Skinfaxi - 01.10.1931, Síða 22
150
SKINFAXI
til að nota liann of mikið, né að vanda til lians miður
en skyldi. Gott er að þeir, sem óvanir eru að koma
fram á fundum, byrji á því að lesa ujjp.
Upplesari á að vera vel undir starf sitt búinn. Þarf
hann að æfa sig rækilega, svo að raddbreytihgar og
látbragð verði samkvæmt efni hins lesna. Og hezt er
að hann kunni það, sem hann fer með, a. m. k. bund-
ið mál. Eigi er vert að velja langt efni til upplestrar.
— Samlestur er skemmtilegur og tilbreyting frá venju-
legum upplestri, ef lesefnið er samtal tveggja eða fleiri
persóna. Æfa skulu þá lesendur raddbrigði og fram-
komu, eins og i sjónleik væri.
Gott væri hverju U. M. F. að eiga skuggamyndavél,
til þess að geta sýnt myndir til fróðleilcs og gamans
á fundum og skemmtunum, og til skýringar með fyrir-
lestrum og ferðasögum. Þar sem rafljós eru á funda-
stöðum, eru heppilegastar vélar, er sýnt geta bæði
prentaðar myndir og myndir á glerplötum. Með þvi
móti er hægra að afla fjölbreyttra mynda. Þar sem
rafljósa er ekki kostur, verður að nota vélar fyrir gler-
plötur, en i þær má nota „carbid“-ljós. Skuggamynda-
plötur eru auðvilað nokkuð dýrar. En ef algengt væri,
að U. M. F. ættu skuggamyndavélar, gætn þau haft
samband með sér um plötukaup og skifzt á um að
nota þær. Sumstaðar gætu félög átt myndasýnitæki með
skólum. Kvikmyndir taka skuggamyndum fram i
mörgu, en kvikmyndavélar eru dýrar ,bæði að stofn-
kostnaði og rekstri. Mun því óþarft að gera því skóna,
að U. M. F. eignist þær.
Ef félög ráðast í kaup myndsýnivéla, ættu þau að
ráðgast við fróða menn um val þeirra, áður en kaup
eru fest. (Ritstjóri Skinfaxa lætur t. d. fúslega í té
ráð um það efni).
Þegar U. M. F.-fundir eru haldnir á góðveðursdög-
um, er vel til fallið að fara i útileiki, í fundarhléi eða
eftir fund. Er um marga lciki að velja og ])ýðir ekki