Skinfaxi - 01.10.1931, Síða 28
156
SKINFAXI
gáfu Skinfaxa og framkvæmdastjórn sambandsins hefir hann
með höndum eins og áður.
Helgi Valtýsson er ráðinn kennari við Reykjaskóla i Hrúta-
firði. Sambandsstjórn hefir samið við hann um að sækja heim
U.M.F. í héraðssamböndum Austur-Húnvetninga og Dalamanna
og nlansambandsfélög í Vestur-Húnavatnssýslu og Stranda-
sýslu.
Bækur.
íslenzk málfræði handa alþýðuskólum eftir Benedikt Björns-
son. 2. útg. Rvík 1931.
1. útgáfa kvers þessa kom út 1922, en þessi 2. útgáfa er
aukin og endurbætt, bæði að útliti og innihaldi. Bókin er
mjög skýrt og skipulega samin, auðskilin og aðgengileg, bæði
sem skólabók og til sjálfsnáms. Eigum við ekki aðra heppi-
legri byrjendabók til náms í málfræði tungu vorrar, þeirri
fræðigrein, sem hverjum ísleridingi er nauðsynlegast að kunna
og skammarmest að kunna ekki. Kverið kostar kr. 2,25 i bandi.
Þorsteinn M. Jónsson hefir gefið það út. Áður hefir hann
gefið út Ritreglur og Stafsetningarorðabók eftir Freystein
Gunnarsson, bráðnauðsynlegar bælcur hverjum manni.
Minnisbók ferðamanna. Sigurður Skúlason meistari setti
saman. Útg. Óskar Gunnarsson. Rvík 1931.
íslendingar læra æ betur að meta fegurðarauð lands síns.
Ferðalög aukast árlega, mönnum til ómetanlegs gagns og gam-
ans. Var því mikil nauðsyii á, að út væri gefin bók eins og
sú, sem að ofan getur. Þar er þjappað saman furðanlega
miklu af þeim fróðleik, sem nauðsynlegast er að hafa hand-
bæran á ferðalögum, um leiðir um landið, merka og fagra
staði, útilegu, lijálp í viðlögum, Ijósmyndun o. s. frv. Allt er
þetta vel og skipulega fram sett. íslandsuppdráttur og korl
yfir bifreiðavegi fylgir. Bókin er í hæfilegu vasabroli og kosl-
ar aðeins eina krónu. Leiður galli er það, að nöfnin á íslands-
kortinu eru með dönskum frágangi.
Félagsprentsmiðjan.