Skinfaxi - 01.03.1932, Side 28
52
SKINFAXI
Skinfaxa barst þessi merkilega bók til umsagnar rétt nýver-
ið, og er honum alveg sérstakt ánægjuefni að geta hennar.
Bókin er tillag Skaftfellinga til hátíðarinnar 1930, og hafa
eigi aðrir lagt myndarlegar lil. Hún er vel prentuð, á góðan
gljápappír, með fjölda prýðilegra mynda og sýslukorti. Ilitt
er þó meira vert, að efnið stendur eigi að baki ytri búningi,
— fjölbreyttar lýsingar á samlífi Skaftfellinga við þá trölls-
legu náttúru, sem þeir búa við. Höfundarnir eru flestir bænd-
ur og búalið, og ber bókin glæsilegt vitni máli og menningu
skaftfellskrar alþýðu. Auk þess hlýtur hún að vera, það sem
hún nær, næsta merkileg skýring á áhrifum landsins á þjóð-
ina, sem í þvi býr, á því lífi, sem lifað hefir verið á landi
hér í þúsund ár og mótun þjóðarinnar á þeim tíma. Enda vakti
það eigi einasta fyrir útgefanda bókarinnar, að gefa út há-
tíðarrit fyrir Skaflfellinga, heldur og að hrinda af stað söfn-
un heimilda um mótun þjóðarinnar af samlífi hennar við
náttúruna. Ilyggst hann halda slikri söfnun áfram og æskir
um það samvinnu góðra manna um land allt. Er þarna um
stórmerkilegt viðfangsefni að ræða.
Bókin er ódýr eftir stærð og frágangi, kostar 20 krónur.
Mun mega panta hana hjá Isafoldarprentsmiðju í Reykjavik
og lijá útgefanda, séra B. 0. B., Ásum i Skaftártungu. Hana
má ekki vanta í bókasöfn ungmennafélaga.
Med Byrd till Sydpolen. En scout pá upptacktsfard. Av
Paul Siple. Oskar Eklunds bokförlag, Stockholm 1931. —
Höf. bókar þessarar, sem Skinfaxa hefir verið send í sænskri
þýðingu, er 19 ára skáti, yngsti þátttakandi í suðurskautsför
Byrds, sem fræg er. Hafði Byrd hoðið skátasambandi Banda-
ríkjanna að senda fulltrúa í förina, og Paul Aærið valinn úr
sæg umsækjenda. Bókin er fróðleg mjög, en þó ber hitt af,
hve skýrt og skemmtilega pilturinn segir frá. Þessi hók og
aðrar slíkar, er snerta félagsskap og dáðir æskulýðs úti í
heimi, ættu að vera til í bókasöfnum U. M. F. Sænska þýð-
ingin kostar s. kr. 3.75 í bandi.
Félagsprentsmiðjan.