Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1932, Side 6

Skinfaxi - 01.04.1932, Side 6
58 SKINFAXl lega við listiðkunum. Dvaldi liann það ár i Reykjavik og teiknaði og mótaði jöfnum höndum, hvorttveggja af kappi miklu. Teiknikennslu naut hann lijá Stefáni Eiríkssyni myndskera, en auk þess leiðbeindu þeir honum á margan liátl og hvöttu hann, málararnir Ás- grímur Jónsson og Þórarinn B. Þorláksson. Einkum hneigðist hugur G. að myndhöggvaralist. I henni hafði hann enga beina kennslu, en vist mun Rikarður Jóns- son liafa verið honum miklu hetri en enginn í þeirri grein. Hafði G. vinnustofu á sama stað og Rikarður i þenna mund. Guðmundur réðist, þetta fyrsta listamannsár sitt, í stórvirki eitt, er sýnir bæði furðulega djörfung og geysilegt sjálfstraust. Hann tók að sér að gera sjö högg- myndir úr viðskiptasögu íslendinga, og átti að prýða með þeim anddyrið í stórhýsi því, er Nathan & Olsen voru þá að reisa í Reykjavík, en Reykjavikur Apótek á nú. Hann hóf stórvirki þetta með sama áræði og móðurfeður hans neyttu, er þeir ýttu úr vör í tvísýnu veðri; og seigla hans við verkið var sama og þeirra við barninginn frá miðum. Hann leysti verk silt af hendi með sæmd, ólærður æskumaður, og höggmynd- irnar sjö komu á stallana, er þeim voru búnir. Auð- vitað eru viðvaningsmerki bersýnileg á þeim, en ann- að væri kraftaverk. Myndirnar eru: víkingur, goðorðs- maður, Björn .Tórsalafari, Guðbrandur biskup, Skúli fógeti, Jón Sigurðsson og Tryggvi Gunnarsson. — G. fullgerði myndirnar að öllu leyti á eigin spýtur og steypti þær sjálfur í gips. Hver þeirra er 1,45 m. á hæð, og mikið verk á sumum. — Auk þessa stórvirkis bjó G. til nokkrar mannamyndir um þctta leyti. Tvö ár dvaldi G. í Reykjavík, við vinnu og nám.. Hafði liann þá nurlað saman 1200 krónum og lagði af stað með þær til Kaupmannahafnar. Lauk hann inntökuprófi í listaháskólann og stundaði þar nám í átta mánuði. En þá var fé hans þrotið og engan styrk

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.