Skinfaxi - 01.04.1932, Blaðsíða 44
96
SKINFAXI
gamall og hinn efnilegasti maður, gáfaður, einbeittur og vin-
sæll. Hann var um skeið meðal fremstu starfsmanna' U. M. F.
Eyrarbakka.
U. M. F. Drengur í Kjós.
Formaður félagsins, Djarni Ólafsson í Vindási, segir svo
frá, í bréfi tii sambandsstjóra: „U. M. F. Drengur er nú í
byrjun ársins 1932 fjöbnennara en nokkuru sinni áður, og
má svo heita, að æskulýður sveitarinnar hafi nú skipað sér
óbrotinn undir merki þess. Annars þykist eg lýsa ástandi
félagsins að öðru leyti bezt með þvi, að gefa fáorða skýrslu
uin aðalstarfsemi þess s. 1. ár.
Það ár, 1931, liélt félagið sjö málfundi, flesta að vetrin-
um, og gaf út sex tölublöð af blaði sinu, „Hreiðari heimska“,
en það ræðir félagsmál og almenn mál og flytur sögur og
kvæði.
Félagið keppti við U. M. F. Afturelding og íþróttafélagið
Stefni, á íþróttamóti, sem háð var að þessu sinni að Kolla-
firði. Einnig efndi það til íþróttakeppni fyrir drengi, innan
héraðs. Varð þátttaka allgóð. Á árinu var einnig hafizt handa
að undirbúa hyggingu íþróttavallar i sveitinni. Lokið var
við að endurbæta samkomuliús félagsins.
Einn dag á slættinum fóru ungmennafélagar, um fjörutíu
að tölu, piltar og stúlkur, heim til efnalitils bónda i sveit-
inni, sem átti við vanheilsu og þröng kjör að búa, og slógu
þar og rökuðu nókkurn hluta dags. Einnig hjálpuðu nokkrir
ungmennafélagar við þurrk á heyinu, en það var um sjötíu
hestar alls.
Nokkrar almennar skemmtanir liélt félagið á árinu, og eina
skeinmtun fyrir börn innan 14 ára. Slíkar barnaskemmtanir
lieldur félagið á liverju vori. Sækja foreldrar þær, með börn
sín, svo að segja af hverju heimili i sveitinni, enda njóta þær
almennra vinsælda og laða vafalaust hugi barnanna að fé-
laginu.
Ahnenningur á félagssvæðinu fylgir vel málefnum félags-
ins og störfum. Má marka það m. a. á því, að á síðasta mál-
fundi okkar sátu um 30 utanfélagsmenn. Var hann haldinn á
öskudaginn, og allir boðnir og velkomnir, eins og venja er
lijá okkur þann dag ár hvert.“ -—- —- „Drengur" er 10 ára,
og virðist vera „vaskur og batnandi“.
Félagsprentsmiðjan.