Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1932, Page 18

Skinfaxi - 01.04.1932, Page 18
70 SKINFAXI Bernskudagarnir eru frekar dund og athuganir, rangl og ráp, eftirhermur af störfum og athöfnum fullorðinna. Á þeim árum er leikurinn ekki léttir frá störfum og erfiði, áhyggjum eða þunga dagsins. Leikurinn er þá lífið sjálft. Annars grátur og sárs- auki. Þegar einhverjar kvaðir leggjast barni eða unglingi á herðar, breytist viðhorfið á svipstundu. Ef skóli, heimili eða aðrir gjöra þær kröfur, að barn inni eitt- hvert það starf af höndum, sem eigi er hægt að snúa í leik, veldur starfið þreytu. En sú þreyta liverfur aftur, eins og ský fyrir sólu, með töfralælcningu lciksins. Með árunum og ])roska barnanna lilaðast mörg og sundurleit störf á einstaklingana. Á frjálsum stundum verður leikurinn þá nautn lífsins. En útrás fjörsins getur líka brotizt fram í ýmsum athöfnum, er miður fara. Ilætta stendur þá fyrir dyrum. Þeir, sem eldri eru, bera því þær skyldur, að vera á verði í þessum efnum, vera hjálpendur, leiðtogar, skapa heilbrigt umhverfi, benda á hollar leiðir. II. Einn er sá maður frá unglingsárum mínum, er eg, á iþróttasviðinu, leit sérstaklega upp til. Þessi maður hét Guðni Albert Guðnason í Súganda- firði. Hann er nú fallinn í valinn. Andaðist hann snögg- lega, eftir uppskurð, á ísafirði, fyrir tveimur árum, að eins 35 ára gamall. — Var mikill og sár sjónarsvift- ir að þessum ágæta mánni. Eg minnist lians hér, vcgna þess, að eg þekki hann sem augljósast dæmi þess, að heilhrigð og farsæl íþróttastarfsemi mótar skapgerð unglingsins til heilla og giftu. Guðni Albert var fjölhæfur íþróttamaður, en liann var fyrst og fremst glímumaður. Maðurinn var allra manna vænstur á vöxt og lik- amsskapnað allan og karlmannlega fríður. Hitt bar

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.