Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1932, Side 21

Skinfaxi - 01.04.1932, Side 21
SKINFAXI 73 sérstæður einstaklingur, sem stendur eða fellur með þjálfun sinni, andlegri og likamlegri. Ekkert er ákveðið fyrirfram. Alltaf kemur eitthvað nýtt fyrir, nýtt viðhorf, eitthvað óvænt, sem ráða verð- ur fram úr með eldsnarri hugsun. Glímumenn þekkja „glímuskjálfta“, sem gagntekur líkamann, áður en gengið er fram á völlinn. Getta minnir á víghroll, er gengið var lil víga. Glimuskiálft- inn er vottur þess, hversu áhrifamagn glíinunnar er undrasterkt. Hver taug er spcnnt, blóðið svellur af ó- róa og óþoli, það er eins og ósvöluð útþrá æskumanns- ins. Þegar gcngið er fram á glímuvöll, er það liugsun- in um það, að eigi verður snúið aftur, sem mótar fram- gönguna. Hún verður því venjulega örugg og ákveðin. Þetta skapar festu og örvggi lijá glímumanninum. Handtakið minnir svo á drenglyndið, sem sönn ísk glíma byggist á. Drenglyndið er fyrsta og sjálfsagðasta boðorðið, að glíma sjálfs sín vegna og vegna fagurs sigurs, en eigi til þess að neyta aðstöðu sinnar, sem oft getur gefið tilefni til ódrengilegrar viðureignar og niðs. í þessu er fólginn sterkasti þátturinn til göfugra uppeldisáhrifa og skaptamningar — að eiga kost á því að sigra á tvennan liátt, fúlmannlegan eða drengilegan, og velja þann fegurri, þótt hann sc tvísýnni og kosti meiri áreynslu. 1 því felst þessi tigna liugsun: að vera drengur. Meiri heilindi eru einnig fólgin i þessu, en margur kemur auga á, því að einmitt í leik kemur maðurinn til dyranna, eins og hann er klæddur. Og það veilir undramikla fullnægju, að hafa sigrað eða varizt eða fallið á göfugan bátt. Það getur liaft þau heilnæmu ábrif, að slíkt fylgi mönnum út í lífið. Ekki er óliklegt, að svo skjót liugsun, sem að verj- ast bragði, geri menn skjótráðari og úrræðabetri gagn- vart ýmsum viðfangsefnum. Hin sívakandi sjálfsmeð- vitund má aldrei svikja. Þegar komið er niður úr bragði, sem misheppnazt

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.