Skinfaxi - 01.04.1932, Blaðsíða 36
88
SKINFAXI
stofnun þess og einn af stofnendunum var Snorri Sig-
fússon, núverandi skólastjóri á Akureyri og var liann
formaður þess tvö fyrstu árin, eða þar til hann flutti
hurtu úr Svarfaðardal. Hafði þá félagið keypt hús í
Dalvík, byggt við það leiksvið og byrjað á gróðurreit
suður á svonefndum Holtsmóum. í þessu húsi starf-
aði félagið um 20 ára skeið, hélt þar fundi sina, sýndi
fjölda sjónleika, æfði íþróttir o. fl., auk þess sem það
um mörg ár leigði sveitinni húsið til skólalialds fyrir
börn. Nú fullnægði þetta liús ekki lengur þörfum fé-
lagsins, og rcisti það þá nýtt hús á Dalvík 1930, stórt
og myndarlegt, svo að fullyrt er, að það muni vera eitt
liið allra myndarlegasta samkomuliús utan kaupstaða.
Það hús kostaði um 21 þúsund krónur. Snemma hyrj-
aði félagið að beita sér fyrir sundkennslu í sveitinni,
en á siðustu árum hefir það komið upp hinum mikla
sundskála, neðan til um miðbik sveitarinnar. 1 skála
þenna er leidd 22 stiga volg laug um 450 m. langan
veg og hefir þar verið mikið um sundnám siðan, enda
námskeið haldin öðru hvoru, bæði velur og sumar.
Er svo talið, að varla sé nokkurt ungmenni í sveitinni
ósynt, og leita þangað til náms unglingar úr öðrum
sveitum, m. a. 5.-bekltingar Menntaskólans á Akureyri,
bæði i fyrravetur og nú í vetur. Byggingarkostnaður
skálans og leiðslur nam rúmum 20 þús. lcrónum, og
hafa bæði ungmennafélögin í sveitinni, U. M. F. Svarf-
dæla og U. M. F. Þorsteinn Svörfuður, sem er einskon-
ar afsprengur iiins eldra félags, stofnað 1922 fyrir
fremri hluta sveitarinnar, lagt þar fram mikið starf
og um 8 þús. kr. í peningum og vinnu, en liitt ríkis-
sjóður, sveitarsjóður og fleiri.
Þá hefir félagið eflt gróðurreitinn mjög og er liann
nú orðinn hin mesta sveitarprýði, en í reitinn hefir
félagið lagt um 2400 krónur, auk geysimikillar vinnu
félagsmanna.
Bókasafn sveitarinnar hefir félagið látið sér mjög