Skinfaxi - 01.11.1939, Page 54
134
SKINFAXI
— Þá var bjart yfir byggðum íslands,
og sú birta er enn ekki týnd,
hún mun endast um óravegu,
og er enn ekki að hálfu svnd.
Því að birta frá íslenzkri æsku
er ómæld um framtímans hyl,
hún er vermandi vorgjafi þjóðar
og verður að eilífu til!
IV.
Kom þú, vinur, í vormannahópinn,
það mun verma þig betur en sól!
Hvað sem árum og aldri líður
þá skal æskan þitt höfuðból!
Hún er sókndjörf, þó silfrist hárin,
hún er sígjöfult, vermandi Ijós,
hún er vorið, sem aldrei eldist,
hún er Islands fegursta rós!
Aðlasteinn Sigmundsson :
Fallnir stofnar.
i.
Páll fíjarnason skólastjóri í Vestmannaeyjum lézt 5. des-
ember 1938. Ilafði liann lengi, og raunar allt frá bernsku, átt
við vanheilsu að stríða. Var hann oft mjög veikur hin síðari
ár. Hjartað var bilað.
Páll fæddist að Götu á Stokkseyri 26. júní 1884. Móðir hans
er Margrét Gísladóttir, sem enn lifir að 'Fraðarholti við
Stokkseyri, en faðir Bjarni Pálsson, einn hinna kunnu Syðra-
Selsbræðra. Er sú ætt hin merkasta, og ber af hve hljómlist-
argáfa er þar rík og almenn. Nægir í Jjví sambandi að minna
á þá feðga ísólf föðurbróður Páls skólastjóra og Pál ísólfsson,
og Frðrik Bjarnason kennara, bróður Páls, sem allir eru þjóð-
kunn tónskáld. Bjarni Pálsson var organisti í Stokkseyrar-
kirkju, hinn álitlegasti maður, en lézt ungur.