Skinfaxi - 01.11.1939, Blaðsíða 80
160
SKINFAXI
Sigurður Ólafsson:
Ungmennasamband Skagafjarðar.
Þegar við höfum farið einhverja ókunna leið, höfum við
oft gaman af að lita yfir farinn veg, og virða fyrir okkur
tildrög og upphaf ferðalagsins, og þá ekki síður að rifja upp,
hvað nýtt og áður óþekkt við kunnum að hafa séð og heyrl.
Geta það þá verið bæði hugljúfar og misjafnar endurminn-
ingar, er mætast i hugum okkar.
í þessari stuttu yfirlitsgrein vildi ég gefa ofurlítið til kynna,
hvernig störfum og samvinnu hefur verið háttað milli Ung-
mennafélaganna í Skagafirði nú síðustu 30 ár.
I. Fyrstu tildrög.
A fundi, er Umf. Æskan i Staðarhreppi hélt í byrjun mai-
mánaðar 1906, valrti Jón Sigurðsson á Reynistað máls á því,
að æskilegt væri, að meiri samvinna og félagsskapur ætti sér
stað milli ungmennafélaga í Skagafirði, og i því sambandi
benti hann á, að rétt væri að leita samkomulags við Umf. í
Lýtingsstaðahreppi, um sameiginlegan skemmtifund, ef vera
mætti að það leiddi lil þess, að frekari samvinna tækist sið-
ar meir. Var máli þessu vel tekið, og ákveðið og samþykkt
á fundinum, að skrifa umf. Lýtingsstaðalirepps, þessu máli
til undirbúnings, og var það þegar gjört. Tóku Lýlingar þessu
vel, og áttu svo fulltrúar beggja félaganna i'und með sér 1.
júní sama ár, til að undirbúa skemmtifundinn. Var hann svo
haldinn að Skiphóli hjá Vindheimum i Lýtingsstaðahreppi
12. ágiist um sumarið. Fóru þar fram ræðuhöld og íþróttir,
eftir því sem tök voru til. Varð ánægja milcil meðal félaganna
og ósk um að halda framvegis slíka sameiginlega skemmti-
fundi, er tök væru á, og fá þá fleiri félög til samstarfs. Á
fundi, er haldinn var 1908, til undirbúnings sumarsamkom-
unni, er haldast skyldi, voru auk fulltrúa tveggja áðurgreindra
félaga mættir fulltrúar frá Umf. Fram i Seyluhreppi, Umf.
Hegra í Rípurhreppi og Umf. Framsókn í Viðvikurhreppi, og
ákvað fulltrúafundurinn, að á næsta sumarmóti yrði samvinnu
félaganna hreyft, og var Umf. Fram í Seyluhreppi falin fram-
saga málsins.
Sumarmótið var svo haldið 2. ágúst, og i lok þess flutti
Brynleifur Tobíasson í Geldingaholti (nú á Akureyri) erindi
um samvinnu ungmennafélaganna, og lagði fram frumvarp til