Skinfaxi - 01.11.1939, Blaðsíða 90
170
SKINFAXI
verja á norskum selfangara. Iir sagan greinagóð, vel skrifuð
og hin skemmtilegasta aflestrar. íshafið er æfintýraheimur,
sem íslendingar hafa yfirleitt ekki mikiS af að segja, en eru
þó forvitnir um. Hér er tækifæri til að fræðast um það af
raunsannri frásögn. — Hin ferðabókin er F r á J a p a n og
Ii í n a eftir Steingrím Matthíasson lækni. Segir hún frá ferð
sem höf. fór til Austurlanda 1903—’04, sem skipslæknir á einu
stórskipi danska Austur-Asíufélagsins. Skrifaði hann bók þessa
á ferðalaginu, sem ferðapistla til blaðsins „GjaIlarhorns“ á
Akureyri. Lýsir hann Jíví, sem fyrir augu og eyru bar á hinni
löngu ferð austur gegn um Suezskurð, um Indland, Kína og
Japan, og til baka aftur. Öll er frásögnin með Jjví létta fjöri,
sem auðkennir öll skrif Steingríms læknis, og er óvenjulega
skemmtilegur lestur.
Þriðja bókin frá Eddu er Flóttamenn, litil saga eftir
hið þekkta franska skáld Gug de Maupassant, en eigi sést
hver J)ýtt hefir. Sagan segir frá flóttamönnum í fransk-þýzka
stríðinu 1870—’71, hvernig J)eir fá samferðastúlku eina til
að losa þá úr haldi með þvi að láta sæmd sína, en fyrirlíta
hana svo á eftir. Er sagan hin bezta hugvekja.
F e r ð a l a n g a r, æfintýri handa börnum og unglingum,
eftir Helga Hálfdanarson, er næsta nýstárleg barnabók og
merkileg. Þetta er rauriar efnafræðin, sett fram i æfintýra-
legu ferðasöguformi. Tekst höf. yfirleitt mjög vel að gera
þurrar staðreyndir efnafræðinnar að ljósu, auðskildu og
skemmtilegu æfinlýri við hæfi J)roskaðra barna, en æfin-
týrið er um leið hinn nvtsamasti fræðilestur. Einkum hefir
vel tekizt um fyrri hluta bókarinnar, almennu efnafræðina,
en hún er langfyrirferðarmest. Kaflinn „í heimkynni efnanna“
er aftur fullstrembinn fyrir börn, og er vafamál, hvort hann
spillir ckki gildi bókarinnar, með ]>ví að verða þess vahl-
andi, að hinir ungu lesendur þreytist eða uppgefist á niður-
laginu og leggi bókina frá sér með vonbrigðum. — Persónu-
lega kann eg illa við erlendu nöfnin í bókinni (Kemíus, Fýs-
ikus, Astrónómíus o. s. frv.). En lijá því er ef til vill ekki auð-
stýrt. Bókiri er prýdd mörgum teikningum eftir höf. sjálf-
an. Bókaútgáfa Heimskringlu hefir gefið hana út.
Bókmenntafél. Mál og menning hefir náð stórmiklum vin-
sældum og glæsilegri útbreiðslu. Það læiur félagsmenn sína
fá 6 úrvalsbækur á ári fyrir 10 kr. gjald, ogí er úrval úr And-
vökum Stephans G. Stephanssonar i 2 bindum meðal bók-
anna í ár. 1943 ætlar fél. að gefa út mikið og veglegt rit-