Skinfaxi - 01.11.1939, Blaðsíða 64
144
SKINFAXI
sálrænt gildi, að hús félaganna gcti verið skemmtileg, hlýlcg,
hjört og loftgóð. Upphitun á að koma jafnhliða húsinu. Hjá
mörgum félögum er sú venja, að Iialda fundi áfram í 4—5
tíma, án bess að veita hlé. Þetta er fjarstæða. Hlé ætli að
hafa a. m. k. á tveggja tíma fresti, og máske oftar. Þá er ágætt
að drekka kaffi, dansa, fara í inni- eða útleiki, syngja eða
eilthvað slíkt, sem hitaði fólkinu og kæmi fjöri í daufar sálir.
Hléið ætti að vera í 20—30 mínútur. Félagarnjr setjast aftur
i sæti sín, heitir og kátir, og væri þá ekki óhugsandi, að 'ein
nver feiminn kveddi sér hljóðs, meðan hitinn væri í líkam-
anum, eftir hreyfinguna i hléinu. Og einnig myndi vera heppi-
legast, að einhver óvanur byrjaði framsögu sina, eftir slíkt
hlé; annaðhvort úr umræðunefnd, eða sá, sem ætli að svara
spurningum, sem eg gat um áðan.
Það munu margir dæma félagslegan þroska ungmennafé-
laganna eftir fundarsókn, og eftir fjörinu, sem sé í fundunuin.
Nú ná fundirnir aldrei til allra félaganna, hversu sem umræð-
ur kunna að vera skipulagðar af hálfu stjórnarinnar, svo að
fyrir þeim, sem utan við þær standa, verður félagslífið dautt.
Þá verður að finna eilthvað, sem saméinar félagana, þar s'em
þeir geti komið saman til að skemmta sér á heilbrigðan hátt,
og einnig til að fræðast. Samkvæmt þjóðrækniskennd ung-
mennafélaganna ætti að miða slíkar stundir við gamla og nýja
þjóðlega luetti. Við munum þá fyrst koma auga á kvöldvök-
urnar. Þau ungmennafélög, sem eiga hús, ættu að leggja stund
á sííkt baðstofulíf, og sníða kvöldvökurhar að öllu leyti eftir
gömlu ísl. kvöldvökunum. Ungmennafél. koma saman t. d.
einu sinni i mánuði, eitthvert kvöld. Væri þá stjórn félagsiris,
eða þar til kjörin kvöldvökunefnd, búin að undirbúa allt
skipulag kvöldvökunnar. Kæmu piltar með ýmiskonar efni
til handavinnu.s.s.efni í gjarðir, hnappheldur og reiptögl, efni
til að skera út í, o. fl. því um líkt. Stúlkurnar kæmu með
sauma síria, hannyrðir, prjóna eða slíkt. Einhverjir væru
búnir undir að lesa upp sögukafla, annaðhvort frumsamda
eða eftir innlendan höfund, eða kvæði. Einhver væri búinn
undir að kveða rímur, syngja, segja skrítlur o. fl. Þá hefðu
menn og töfl, spil og gestaþrautir, gátur væru ráðnar, kveðizt
á o. s. frv. Ekki íná glevma draugasögunum, — og þá að hafa
dimmt. Slíkt styrkir viðkvæmar taugar og hressir styrkar
súlir. Sjálfsagt er að félagið veiti kaffi eða einhverja hress-
ingu á kvöldvökunum. Þarf slíkt ekki að vera stór útgjalda-
liður. Enda gætu félagar haft með sér að heiman allt, sem til
þarf.