Skinfaxi - 01.11.1939, Page 72
152
SKINFAXI
af héraðsskólunum nýju var skóli Þingeyinga. 1 samræmi viS
l'etta voru vonir niínar um félagsmenningu Þingeyinga áður
en eg kom þar.
Eg liefi margs góðs að minnast úr Þingeyjarsýslu. Hvergi
hefi eg eins vel fundið gamla, íslenzka sveitamenningu sam-
gróna nýju umhverfi og nútíðarbrag og þar. Og hvergi fund-
izt eins tii um heimilismenningu. Þó varð eg fyrir nokkrum
vonbrigðum af ungmennafélögunum. Mér fundust þau ekki
samhoðin menningu sveita sinna. Þó er því sizt að neita, að
þau starfa á margan hátt vel og tómlegri væru sveitirnar þar
ef þau væru ekki. En sum þeirra ættu að vera betri. Og þau
gætu verið það, þvi að margt er þarna ágætra manna, svo a&
efniviðinn skortir ekki. En hvað veldur þá?
Eg mun hér reyna að gera grein fyrir skoðun minni. Þeir
hlutaðeigendur, sem kunna að sjá þessi orð, standa að sjálf-
sögðu betur að vígi en eg til að dæma um réttmæti þeirra.
En þeirra á meðal munu þó vera skiptar skoðanir um álit mitt.
Ungmennafélögin þingeyzku hafa minni áliuga en æski-
legl er á bindindismálum yfirleitt. Drykkjuskapur hefir verið
lítill í sýslunni en þó jafnan nokkrir menn, sem hyggja gott
til þess, að gleðja sig við skál endrum og eins. Það eru menn,
sem engan hneyksla, en er illa við bindindi. Nú kvarta Aðal-
dælir undan drykkjuskap Húsvíkinga á sumarskemmtunum
og Fnjóskdælir og enda Mývetningar kvíða því, ef vínnautn
sumargesta vex. Auk þess eru til menn heimafyrir, sem þykja
(dkærir lil lýta. Tóbaksnautn virðist mjög algeng í sumum
sveitum, svo sem Aðaldal. Eg hefi hvergi verið í sveit, þar
sem mér hefir fundizt fólkið reykja jafn almennt. Fimmtugir
bændur sótu við hlið nýlega fermdra stúlkna og reyktu vindl-
inga. Ilinsvegar reykti enginn innan dyra í sundlaug Reyk-
hverfinga, sem er samkomustaður þeirra. Svo ólíkur er sam-
komubragur þessara tveggja sveita, sem liggja samhliða.
Eg er alveg viss um það, að þetta hlutleysi og tómlæti té-
laganna um bindindismálin er þeim hættulegt. Þeim er það
hnekkir, að geta ekki átt með mönnum í öðrum landshlutum
])essa hugsjón, sem er hjartans mál svo margra góðra manna.
En e. t. v. breytist þetta fyrr en varir, þvi að Þingeyingar
eiga marga ágæta liðsmenn á þessu sviði.
Yfirleitt munu ungmennafélögin þingevsku leggja minni
ahið við málfundastarfið en heppilegt væri. Hér eru þó til
undantekningar, svo sem Mývetningur. En eg var líka á fundi,
sem hófst með dansi kl. 8 um kvöldið. Kl. 12 var kaffihlé og
þrír menn tóku þá til máls undir borðum. Svo var dansað.