Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1939, Side 79

Skinfaxi - 01.11.1939, Side 79
SKINFAXI 159 i iidur 15. Fimm skemmtisamkoinur haldnar að Þingborg, með sjónleikum o. 11. Fór skemmtiferð að Vik i Mýrdal. Fé- lagar 74. Umf. Stokkseyrar: Hefir gengizt fyrir og styrkt fjárhags- lega unglingaskóla, er starfaði í 3 mán. Kennari Gunnar ól- afsson. Nemendur 27. Taflflokkurinn tók þátt í tveimur skák- mótum, við taflfélagið á Selfossi og fjölskák við Baldur Möll- er, Revkjavík. Félagið styrkir bókasafn í hreppnum og efstu deild barnaskólans til sundnáms i volgri laug. Umf. Þróltur, Vatnsleysuströnd: Starfrækir unglingaskóla frá 1. okt.—31. jan. Nemendur 14. Kennari Ingibjörg Erlends- dóttir. Félagið á hús og sér um fjölbreytt skennntanalif. Hér hefir verið drepið á starfsemi nokkurra félaga. Hin eru þó fleiri, sem ekki er getið. Þar sem minnzt er á eignir félaga, eru aðeins skuldlausar eignir taldar. Nokkur félög ber-a allháar skuldir, sem standa í sambandi við ýmsar fram- kvæmdir þeirra, samkomuliús, sundlaugar, trjágarða o. fl. Víðast þar, sem farið er um landið, gætir áhrifa og starfa Umf. í þessum efnum, og liafa þau þar lagt fram mikla þegn- skaparvinnu. Þá cr það gömul og góð venja, að Umf. vinni að heyskap og öðru, hjá þeim, sem eru lamaðir af veikindum eða fátækt. En hitt er nýtt, að þau taki sér fyrir hendur að hjálpa einstökum mönnum að reisa nýbýli og gerast þannig landnemar. Þetta hafa nokkur Umf. gert og er Jiað lofsverð cg fögur fyrirmynd. Þvi að á þann liátt glæða Jiau áhugann og bæta möguleikana fyrir auknu landnámi. Nokkur Umf. hafa myndað barnadeildir og önnur hafa lengi starfrækt liær. Er það góð og gagnleg starfsemi hjá félögunum, að laða þannig yngstu æskuna að sér og vinna fyrir hana. Yngri deildir geta verið lífæð félaganna með því að skila Jiangað sifellt nýjum kröftum. Sambandsstjórnin hvetur Umf. vfirleitt til að athuga Jietta og lætur í té lög og aðrar upplýsingar, er Jiá starfsemi varðar. Viðfangsefni Umf. eru annars margþætt, og áhrifa Jieirra og starfa gætir í öllum héruðum landsins. En þó býst ég við að fréttamolar Jieir, er íið framan eru birtir, hafi yfirleitt ekki komið fram annarstaðar. Almennt má hæta við, að flest Umf. minntust 20 ára fullveldis íslands 1. des. eða höfðu forystu i Jiví. Mörg gefa út handrituð blöð og sinna leikstarfi. Þetta er hljóðlátt starf, sem hefir ])ó orðið að miklu liði og iijálpað mörgum æskumanninum áfram til meiri þroska og manndóms. Vænti ég, að starfið í vetur megi verða far- sælt og miða öruggt að settu marki.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.