Skinfaxi - 01.11.1939, Side 83
SKINFAXl
163
Framnesi, 1918—’21; Guðmundur Sveinsson, Hóli, 1919—’21;
Sigurður Ólafsson, Kárastöðum, 1921—’24.
B. Á þessu tímabili voru þessi Umf. í sambandinu: U.M.F.
Framför, Lýtingsstaðahreppi, 1910—21 (og er enn); U.M.F.
Æskan, Staðarhreppi, 1910—’21 (lagðist þá niður); U.M.F.
Fram, Seyluhreppi, 1910—’21 (og er enn); U.M.F. Framsókn,
Viðvikurhreppi, 1915—’21 (lagðist þá niður); Málfundafél. í
Hofshreppi’ 1918—’19 (Jsagði sig úr sambandinu); U.M.F.
Iiegri, Rípurhreppi, 1917—’21 (og er enn). — Nokkur fleiri
félög voru starfandi á þessum tima í Skagafirði, en þau gengu
ekki inn i sambandið. Má þar nefna U.M.F. Tindastól á Sauð-
árlcróki, og U.M.F. Geisla í Óslandslilíð. Þessi félög höfðu
bæði strangt bindindisákvæði í lögum sínum, og náðu þess
vegna ekki upptöku i sambandið, því að það vildi aðeins
vinna að bindindi á fjálsum grundvelli.
C. Tekjur sambandsins voru á ]iessu tímabili (1910—20):
Kr. 658.55, en gjöld kr. 59.85. Skuldlaus eign þess 1920 var
kr. 615.96.
Árið 1921 var orðið mjög dauft yfir störfum sambandsins,
þó að það væri búið að afla sér nokkurs fjár, enda voru þá
sum sambandsfélögin lögzt niður og önnur gengin úr því.
Sá þá aðalfundur sambandsins ekki fært að halda störfum
lengur áfram, en taldi hinsvegar rétt að skipa framlevæmdar-
nefnd þá í bili, til að endurreisa sambandið, ef nýr áhugi
vaknaði um það í félögum þeim, er þá störfuðu. Starfaði
nefndin að því, að reyna að endurreisa félögin, þar sem þau
liöfðu lagzt niður, og tókst það sumstaðar. Sömuleiðis vann
liún að því, að vekja áhuga þeirra félaga, er utan sambands-
ins voru, á því að ganga í það, og tókst það við sum félög-
in, á þeim grundvelli, að sambandið tók ]iað upp á starfs-
sltrá sína, að vinna að bindindismálum á sambandssvæðinu
á frjálsum grundvelli, þannig, að það væri sérmál livers fé-
lags, er liefði bindindisákvæðin, enda þá líka landslög um
vinbann.
IV. Sambandið endurreist.
Eins og áður er frá sagt, lagði sambandið niður störf að
mestu á aðalfundi, er lialdinn var 27. febrúar 1921. Var svo
i næstu 2 ár. En þá þótti nokkrum áhugasömum ungmenna-
félögum það illa farið, að ekki væri haldið áfram samstarf-
inu milli hinna einstöku félaga. Var því boðað til nýs aðal-
fundar á Sauðárkróki (um sýslufundarvikuna) 29. febrúar
1924, og gengu þá þrjú ný félög inn i sambandið: U.M.F.
11*