Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1946, Page 21

Skinfaxi - 01.04.1946, Page 21
SKINFAXI 21 slríðið hófst. Þær voru orðnar átta, þegar Japan bætt- ist í hildarleikinn, og sumarið 1943 voru þær fjörutíu og átta, ásamt 170 útibúum, sem smíðuðu vopn. Sérstakt skipulag á þjálfun iðnverkamanna kom þvi lil leiðar, að nægilegar hendur voru til að vinna við allar þessar nýju vélar og tæki. Með sérstökum samn- ingi við samtök iðnaðarmanna var komið i veg fyrir skort faglærðra manna með þvi að taka lærlinga og lagtæka menn. Alls konar tækniskólar og vélfræðihá- skólar tóku þátt í átakinu með ])ví að koma á fót nám- skeiðum, og var tví- og þriskipt í þá daglega. Meira en 70000 verkamenn gengu i gegnum þessa skipulögðu þjalfun ríkisins. Margar tegundir efna, sem nauðsynlegar voru til fram- leiðslu hernaðartækja, höfðu aldrei verið framleidd i Astralíu. Vísindamenn hömuðust til þess að verða við ölluni kröfum. Árið 1939 var meira en helmingur þeirra 150 aðalefna, sem notuð eru í sprengiefni, flutt- ur inn. Fjórum árum seinna voru nær öll efnin fram- leidd í landinu sjálfu. Linsugler, sem notað er í mið- unartæki, sjónauka og gleraugu, er annað gott dæmi um þessa öru framleiðsluuþróun. Áður hafði þess kon- ar gler aðeins verið framleitt af átta fyrirtækjum í lieim- inum, og voru flest þeirra i Evrópu. Fyrsta spor Ástr- alíu i þessum efnum var að bræða saman hrot af úr- vals gluggagleri. Síðan hélt tilraunin áfram, þar til hið nauðsynlega linsugler var fundið, jafn gott þvi bezta, sem innflutt liafði verið, og ódýrara. Alls konar áliöld nieð linsuglerjum voru framleidd í stórum stil handa hermönnum Áslraliu og annarra liermanna samein- uðu þjóðanna, er börðust i Kyrrahafslöndunum. Hið mikla átak varð ekki árangurslaust. Þegar fót- gönguliðssveitir Ástralíumanna komu til móts við Jap- ana á Nýju-Guineu og fleiri Kyrraliafseyjum og stöðv- uðu framrás þeirra, en það voru í raun og veru þær, sem gerðu gæfumuninn i Kyrrahafsstyrjöldinni, voru

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.