Skinfaxi - 01.04.1946, Blaðsíða 22
22
SKINFAXI
þær búnar öllum þeim fullkomnustu vopnum og
tækjum, sem aðstæðurnar kröfðust. Fyrstu orrusturnar
í frumskógunum sýndu, að hermennirnir þörfnuðust
fleiri tækja, vegna nýrra bardagaaðferða, og verk-
smiðjur Ástralíu framleiddu þau. Fatnaður og annar
útbúnaður, nýjar gerðir af heppilegum byssum, allt
svaraði til þarfa liersins.
Þótt ekki væru til nema teikningar af flugvélum í
Ástralíu í stríðsbyrjun, liöfðu flugvélaverksmiðjurnar
samt aflient 3500 vélar til flugliðsins, þegar stríðinu
lauk. Margar nýjar tegundir flugvéla voru smíðaðar,
árásar- og orrustuflugvélar. Flugvélasmiðjur rikisins
í Melbourne bafa nú með böndum smíði á risaflug-
vélum, bæði til hernaðar- og friðarþarfa.
Skipasmíðar jukust stórkostlega meðan á stríðinu
stóð, þótt sá iðnaður lamaðist mikið af því að hafa
alllaf með liöndum viðgerðir á kaupförum og herskip-
um, er löskuðust víðsvegar á Kyrrahafi. Á árunum
1942 til 1945 komu meira en 10000 kaupför til við-
gerðar og athugunar í skipasmíðastöðvarnar í Ástralíu.
Samtímis voru smíðuð 150 stærri og smærri herskip
fyrir ástralska flotann. Þrettán 9000 tonna kaupför
hafa nú verið fullgerð.
Alls nani kostnaður við hernaðarsmiðjurnar á styrj-
aldarárunum 1855000000 krónum. Þegar styrjöldinui
lauk, höfðu miklar verksmiðjur risið upp lvvarvetna i
landinu, allar undir eftirliti ríkisins, allar með nýtízku-
tækjum og vélum. Fólkið, sem vann í þeim, var nýskap-
aður her færustu verkamanna. Það var augljóst, að þess-
ar nýju verksmiðjur og verkafólk, myndu i sameiningu
liafa mikil áhrif á framleiðslu Ástraliu á friðartimum.
Ástralíuhermaðurinn, sem nú snýr lieim, er lireykinn
af þcssum miklu framförum i iðnaði landsins. Þær
eru nauðsynlegt spor á braulinni til vaxandi velmegun-
ar og þroska þjóðarinnar. En liann hlýtur að hugleiða
með sjálfum sér, þegar hann kemur heim ásamt 3500