Skinfaxi - 01.04.1946, Side 24
24
SKINFAXl
að hún muni reka þær ríkisverksmiðjur áfram, sem
beinlínis séu nauðsynlegar til varnar og öryggis land-
inu. Einnig ætlar hún sér að hafa hönd í bagga með
skipa- og flugvélasmiðjunum. Aftur á móti er í undir-
húningi, að nokkur hluti iðnaðarins verði gefinn frjáls
til starfrækslu fyrir einstaklinga á friðartímum.
Tollanefnd, sem hefur með liöndum að rannsaka
beiðnir fyrirtækja um vernd, lýsti nýlega yfir því, að
mörg fyrirtækin, sem stofnuð voru á stríðsárunum,
þyrfti að vernda með tollum fyrst um sinn, þegar fram-
hoð ykist á heimsmarkaðinum.
Skuggi atvinnuleysisins grúfir ekki yfir Ástralíu sem
stendur. Frekar mætti gera ráð fyrir verkafólkseklu,
ef landbúnaðurinn verður eins umfangsmikill og fyrir
stríðið og hinn nýi iðnaður frá stríðsárunum heldur
í horfinu. Opinberar framkvæmdir munu krefjast
geysimikils vinnuafls, sérstaklega lagning nýrra járn-
brauta.
Nýjar járnbrautir.
Striðið kenndi Ástralíumönnum í fyrsta lagi að vera
viðbúnir þvi, að vörur frá öðrum löndum tepptust. I
öðru lagi kenndi innnrásarliættan þeim, að járnbraut-
arkerfi landsins var næsta óviturlegt. Fylkin liöfðu
áður ekki komið sér saman um vkldina milli brautar-
teinanna, og vorn því í landinu þrjú kerfi, og mislangt
á milli teinanna i þeim öllum. Þetta reyndist ótækt á
styrjaldarárunum, þegar hraða þurfti flutningum til
iiinna ýmsu landshluta. Stjórnin hefur því ákveðið, að
lagning nýs járnbrautarlcerfis um landið þvert og endi-
langt skuli koma fyrst af opinberum framkvæmdum.
Að sjálfsögðu verður geysimikil atvinna við þetta risa-
fyrirtæki, bæði í verksmiðjum og við sjálfa brautar-
lagninguna. Mun þetta taka mörg ár.
Gert er ráð fyrir, að þurfa muni 850000 tonn af stáli