Skinfaxi - 01.04.1946, Page 26
26
SKINFAXI
Þcgar á allar aðstæður er litið, er talið sennilegt, að
í'lytja megi inn árlega um 70 þús. manns, og hefur
stjórnin ákveðið að veita viðtöku þeirri lölu, og þá að-
allega úr löndum enskumælandi þjóða og Evrópu.
Eðlileg fjölgun í landinu sjálfu ætti að vera önnur 70
þús. Menn, sem gegnt hafa herþjónustu, og fjölskylduv
þeirra, skulu ganga fyrir með landvistarleyfi, og síð-
an þjálfaðir og sérmenntaðir verkamenn í ýmsuin
greinum, sem hafa mikla þýðingu fyrir þróunina i iðn-
aði Ástralíu. Þessir innflytjendur munu ýmist fá fríar
ferðir eða einhvern styrk til fararinnar.
Það er samt sem áður ólíklegt, að þessi mannflutn-
ingaáætlun komi að verulcgu leyti til framkvæmda fyrr
en eftir eilt eða tvö ár, þar sem annað myndi naumasl
vera sanngjarnt vegna hermannanna, sem heim snúa,
og innflytjendanna sjálfra. I fyrsta lagi er ekki til nægi-
legur skipakostur til þess að f'lytja nýja horgara til
Ástralíu á sómasamlega þægilegan hátt. í öðru lagi
verða Iiermenn, sem hætta þjónustu, að sitja fyrir
störfum og tækifærum til viðunandi lífs, og sama máli
gegnir um verkamenn í stríðsframleiðslunni.
f þriðja lagi eru geysileg húsnæðisvandræði í Ástralíu.
svo að 240000 dvalarstaði skortir nú þegar. Auk þess
búa 240000 fjölskyldur í húsnæði, sem ráðgert er að
lagfæra.
Áællun um hyggingu 750000 nýrra liúsa verður að
vera komin i framkvæmd áður en hægt er að taka við
innflytjendum.
Ástraliumenn eru ákveðnir í því, að þetta fóllc slandi
strax föstum fóturn í hinum nýja jarðvegi. Þeir eru
ekkert ákafir í að gefa loforð, sem ekki er liægt að efna.
Þegar tími er til kominn, mun hverjum manni, konu
og barni, sem vill flytja búferlum, vera gefinn kostur á
að seljast að í Ástralíu. Þau munu koma til lands, þar
sem miklar kröfur eru gerðar lil lífsins, loftslagið er
heilnæmt, og landar þeirra treysta því, að framt’ðin