Skinfaxi - 01.04.1946, Síða 51
SKINFAXI
51
Bi*élaskilti.
Ungnienni hafa jafnan liaft gaman af bréfaskiptum, og oft
°g tíðum mikið gagn lika. Sérstaklega er þó lærdómsrikt og
skemmtilegt fyrir ungt fólk að skrifast á við jafnaldra sina
í öðrum löndum. íslendingar standa í þeim efnum ekki vel
að vígi, þar sem mjög fátítt er, að fólk í öðrum löndum lesi
eða riti íslenzku. En mikii æfing er það öllum þeim, sem
leggja stund á erlend mál, að skrifast á við einhvern á þvi
máli, sem numið er. Skiptir þá ekki einatt máli, að ritleikn-
in sé svo að af heri eða réttritun fullkomin. Taka flestir vilj-
ann fyrir verkið í þeim efnum. Veit eg mörg dæmi þess, að
þakklátur bréfviðtakandi fer lítt i sparðatíning, þótt brugðið
sé út af settum reglum i bréfum, eða þótt orð og orð séu
skakkt rituð eða beygð. Öllum er þó skylt að vanda bréf sin
svo vel sem frekast eru föng á, og er mikill lærdómur að
fást við bréfaskriftir á framandi máli, sem bréfritara er
ekki tamt.
Menn hafa sér ýmislegt til dægrastyttingar og dundurs í
frístundum, og fer það að sjálfsögðu eftir skapgerð þeirra,
hæfileikum og hneigðum. Er ekki að efa, að margt ungmenni
gæti þroskað hugsun sína, vandvirkni og ritleiltni með því
að skiptast á bréfum við önnur ungmenni, annað hvort í öðr-
um landshlutum eða i öðrum löndum. Eru mörg dæmi þess,
að slík bréfaskipti liafa stuðla að ævilangri vináttu, svo að
ekki sé farið enn lengra út í þá sálma.
Orsök þessarra ummæla er sú, að Skinfaxa hafa nýlega
borizt nokkur bréf frá ungu fólki i Noregi. Fylgja nöfn og
heimilisföng hér á eftir. En þses vænzt, að ungmennafélag-
ar, piltar og stúlkur, bregðist nú vel við, og sendi þessu
unga fólki i Noregi nokkrar línur. Ætti ekki að saka, þótt
hverjum bréfritara bærust noltkur bréf. Þvi miður þýðir lík-
lega ekki að skrifa á islenzku, en reyna mætti það þó til
gamans. — Annars er bezt að rita fyrst á norsku, dönsku eða
sænsku. Hér eru nöfnin:
Inga Nes, Bergen, Nordfjordeid, Norge.
(Inga er 19 ára. Vill helzt skrifast á við pilt).
Johan S. Eid, Sætervollen p.a. pr. Skagmo st.
i Namdalen, Norge.
(Jolian vill skrifast á við pilta og stúlkur, um 17 ára að aldri).
Elmer Grimstad, Store Mildre pr. Bergen, Norge.
(Elmer skrifar vel ensku, vill læra íslenzku, og langar að
heyra frá báðum kynjum. Hann er 20 ára).