Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.07.1958, Qupperneq 3

Skinfaxi - 01.07.1958, Qupperneq 3
£kin{[axi Tímarit U.M.F.Í. 3. hefti 1958 • ÍFtgefandi: Sambandsstjórn Ungmennafélags Islands. Pósthólf 1342. — Reykjavík. Afgreiðsla: Edduhúsinu, Reykjavík, efstu hæð. Ritstjóri: Guðm. Gíslason Hagalín. Sími 50166. • Félagsprentsmiðjan h.f. Landhelgin Sá, sem þetta ritar, er fœddur og uppalinn vid einn af þeim fjörðum þessa lands, sem fiskisœlastir voru. Frá fyrstu árunum, sem hann man eftir sér, minnist hann þess, að dag oftir dag komu margir tugir báta að landi með mikinn og góðan afla, þegar veður leyfði sjó- sókn. En hann minnist þess líka, að með hverju árinu sem leið, varð það tíðari sjón, Q-ð enskir reykspúandi togarar stefndu inn fjörðinn og vœru þar að veiðum dögum sam- Qn, ekki aðeins sópuðu upp fiskinum, sem gengið hafði á miðin og átti að verða björg í búi barnamannsins, heldur líka eyðilegðu öll veiðarfœri og þar með getuna til lífsbjargar. Og brátt kom þar, að ekki tjóaði að treysta því sér til lífsframfœris að sœkja þarna sjó. Bátunum fœkkaði, sem sjóinn sóttu, fœrra og fœrra fólk varð á bœjunum, grasbýli lögðust 1 eyði, síðan hinar smœrri jarðir, og loks er nú svo komið, að þar sem bjuggu á fyrstu ára- tugum þessarar aldar hátt á þriðja hundrað manns, eru nú aðeins sjö tugir manna. Enskir togarar, sem þjónuðu gróðamönnum í Húll og Grímsbý, rændu brauði og bjargarmöguleik- um frá bœndum og búaliðum, hröktu roskið fólk burt úr hugumkœrum átthögum og dreifðu unga fólkinu um þorp og bœi fjar- lœgra landshluta. Og þessi sama saga hefur gerzt í öllum fjörðum og víkum þessa lands. Hvarvetna getur að líta eydd býli, býli, sem fyrst og fremst botnvarpan brezka hefur lagt í eyði ... En við höfum séð meira, því að hér létu ránsmennirnir ekki staðar numið. Að lokinni þessari eyðingu var skröpuð grunnslóðin úti fyrir nesjum, síðan tekinn fyrir reitur nokkru fjœr landi, svo sem þegar sláttumaður skárar, og loks var svo komið, að við lá, að þær byggðir landsins, sem á árum þrenginga og kúgunar höfðu minnst af sulti að segja, eydd-

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.