Skinfaxi - 01.07.1958, Blaðsíða 10
74
SKINFAXI
eldri og yngri flokki. Eldri flokkur, sem
kallaður er I. fl., er fyrir aldurinn 20 til
30 ára, en yngri flokkurinn, sem við köll-
um II. fl., er fyrir aldurinn upp að 20 ára.
Þetta Selfossmót var í flestu líkt fyrri
mótum lijá Héraðssambandinu Skarp-
héðni, sem farið liafa fram í Hveragerði.
Þátttaka var fremur litil, nema frá fjór-
um félögum. Vegna þess hve mörg félög
liöfðu rétt til keppni á mótinu, voru þær
reglur settar, að aðeins mætti einn frá
hverju félagi keppa í hverjum flokki í
hverri grein, og á þann liátt takmarkaður
fjöldi keppenda. Þeir voru 46 talsins.
Árangur keppenda í yngri flokki í bú-
fjárdómum var atliyglisverður og spáir
góðu um frammistöðu þessara ungu
manna, þegar þeir öðlast meiri keppnis-
reynslu. Hann sýnir líka annað, sem sé
það, að fijótt er hægt að kenna ungum
drengjum að dæma um búfé af kunnáttu.
Sá, sem ætlar sér að fást við búskap, á
svo fljótt sem kostur er að kynna sér
allar greinar húskaparins og á þann hátt
menntast til þeirra starfa, sem bíða hans.
Á plöntugreiningu er rétt að minnast.
Málbandið hefur sitt að segja.
Fótur mældur.
I lienni tóku þátt 6 piltar og 5 stúlkur.
Verkefnið var að þekkja 40 jurtir, sem
valdar voru úr hópi íslenzkra villijurta.
Þar voru valllendis-, mýra. og fjörujurtir,
og reyndi þvi verkefnið mjög á alhliða
þekkingu keppenda á gróðri Islands. Eng-
inn greindi allt rétt, en einn skilaði frá-
hærum árangri, en það var Guðmundur
Jónsson á Kópsvatni i Hrunamannahreppi.
Hann greindi 37 jurtir rétt. Plöntugrein-
ing er skemmtileg keppnisgrein og ætti
að vera á öllum starfsíþróttamótum, sem
lialdin eru að sumrinu. Þá væri það líka
mjög til athugunar að láta keppendur
gera grein fyrir helztu lilutum jurtarinn-
ar og næringarþörfum hennar.
I kvennagreinunum lagt á borð og þrí-
þraut voru allt of fáir keppendur, en verk-
efnin snoturlega af liendi leyst.
Dráttarvélaakstur er mjög vinsæl
keppnisgrein meðal ungra manna. Ellefu
keppendur voru að þessu sinni, og kepptu
þeir í braut, sem lögð var á túni rétt
sunnan við sýningarsvæðið. Var túnið
bæði bratt og óslétt og því erfið öku-
braut, en samt náðu sumir góðum árangri.