Skinfaxi - 01.07.1958, Blaðsíða 15
SKINFAXI
79
verða við þörf þjóðarinnar á öflugu og
fórnfúsu starfi í þágu æskunnar og frain-
tiðarinnar.
Fundurinn beinir þeim tilmælum til
fræðslumálastjórnarinnar, að hún hlutist
til um, að trjárækt skóla verði styrkt af
ríkisfé og leitað sé stuðnings skógræktar
ríkisins í því efni.
Fundurinn beinir því til ungmennafé-
laga um land allt, að þau geri sér fulla
grein fyrir, að heill félagsskaparins og
þjóðarinnar varðar miklu, að starf meðat
unglinga og barna sé eflt eftir því, sem
kostur er, bæði á sviði iþrótta og annarrar
frjálsrar félagsstarfsemi. Minnir fundur-
inn i þvi sambandi á, að börnum og ung-
lingum sé gefinn kostur á tilsögn i íþrótt-
um ekki síður en þeim eldri og að mót
við þeirra hæfi séu haldin innan félaga og
béraðssambanda.
Þá bendir fundurinn á, að þörf er fjöl-
breyttra tómstundastarfa fyrir upprenn-
andi æskufólk og skorar á ungmennafé-
lögin að beita sér fyrir farsælum úrlausn-
um í því máli, hvert á sínu félagssvæði.
Fundurinn samþykkir að skora á 1-
þróttakennaraskóla íslands að gangast ár-
lega fyrir leiðbeinendanámskeiðum í
helztu íþróttum, sem ungmennafélögin
iðka. Ennfremur skorar fundurinn á stjórn
sambandsins að aðstoða stjórnir béraðs-
sambandanna í því að halda stutt leið-
beinendanámskeið heima i héruðunum.
Skal bún ráða menntaða kunnáttumenn
til þess að veita slíkum námskeiðum for-
stöðu.
Fundurinn lítur svo á, að heimsóknir
félaga og héraðssambanda og keppni milli
þeirra sé spor í rétta átt til þess að efla
og auka fjölbreytni í íþróttastarfinu. Vænt-
ir fundurinn þess, að framhald verði þar
á og aukning, þannig að félög og sambönd,
sem enn bafa ekki komið slíkum lieim-
sóknum á, geri það.
Fundurinn samþykkir að skora á fjár-
veitinganefnd Alþingis að veita á fjárlög-
um ársins 1959 fé til þess að byggja heima-
vistarhús íþróttakennaraskóla Islands.
Fundurinn hvetur öll ungmennafélög til
þess að vinna ötullega að starfsíþróttum
og sérstaklega meðal barna og unglinga,
og leggja megináherzlu á uppeldis- og
fræðslugildi þeirra.
Ennfremur að fá sérstaka umsjónar-
menn fyrir hvert félag, sem varið geta
nokkrum tíma til þess að skipuleggja verk-
efni í samráði við héraðsráðunauta og
leiðbeinanda UMFl og litið eftir þvi, hvern-
ig verkefnin eru af liendi leyst hjá ungling-
unum.
Fundurinn þakkar sérstaklega gott sam-
starf við héraðsráðunauta búnaðarsam-
banda og lætur í ljós ósk um gott samstarf
framvegis.
Fundurinn beinir þeim tilmælum lil
starfsiþróttanefndar ríldsins, að hún beiti
sér fyrir þvi, að ráðinn verði hjá Búnað-
arfélagi Islands ráðunautur í starfsíþrótt-
um svo fljótt sem auðið er, og skipuleggi
hann starf ungmennafélaga í starfsíþrótt-
um og leiðbeini þeim.
Fundurinn beinir þeim tilmælum til
bændaskólanna og framhaldsdeildarinnar
á Hvanneyri, að 'ckin verði upp kennsla
í starfsíþróttum og nemendum kennt að
leiðbeina í þeim og stjórna mótum.
Fundurinn felur sambandsstjórn að
auka framkvæmdir í Þrastaskógi og leita
til Alþingis og annarra aðila um styrk til
bans með því, að Skógræktarfélag Islands