Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.07.1958, Blaðsíða 4

Skinfaxi - 01.07.1958, Blaðsíða 4
68 SKINFAXI ust með öllu, jafnt þorpin við víkurbotna og á fjarðareyrum sem býli nesja og stranda. Svo hrópar Bretinn á þann rétt, sem hefðin hafi veitt honum, hefðin sú að rœna björg frá munnum barnanna, að leggja i rústir alda- gömul býli, að hrekja œskumenn heilla sveita af þeim slóðum, sem formœður og forfeður hafa vígt sveita og blóði. Og hið brezka veldi, sem misst hefur svo vel Indland sem írland, sem stendur svo ráðþrota á Kýpur, að það skirrist ekki við að beita pyndingum, nýtur þess nú að snúa hingað til ógnunar þeim úr- eltu stríðsskipum, sem það hefur hvorki hug né dug til að sýna Rússanum í Gandvík norður! En svo eru það ekki bara við, er höfum séð œttmenn okkar svipta björg og framtíð á býlum feðranna og átthaga okkar eydda, sem stöndum saman um þá kröfu, að ekki sé vikið hársbreidd frá settu marki í landhelgis- málinu, heldur þjóðin öll, bœndur dala og hús- freyjur breiðra byggða jafnt og sjómaðurinn á trillunni og verkakonan í hraðfrystihúsinu, — fulltrúinn í stjórnarráðinu og kaupkonan í klœðaverzluninni engu síður en útgerðarmað- urinn í þorpinu og kona skipstjórans á vél- bátnum. Það undur hefur gerzt, að ýmist ráðvillt eða flokkaþrúguð þjóð finnur til sem eitt hjarta, sem ein sál — miðar ekki við stundarsjónarmið, ekki við fé, ekki við lífs- þœgindi, ekki við erlend viðhorf, ekki við neins konar hégóma, heldur við manndóm sinn og heiður, hinn raunverulega rétt sinn til að lifa sem frjáls og sjálfstœður einstakling- ur í sínu fagra en harðbýla landi — fyrir aug- liti allrar veraldar og ásýnd guðs síns! Um sigurinn þarf ekki að efast, þegar svona er komið, þar sem þá líka reynsla og skyn- semi rísa öndverðar gegn elliglöpum Bretans. Brátt kemur veturinn, blœs vákyljum og hreykir hrunsjóum um ryðkugga Jóns bola, hreytir að þeim éljum og kreistir þá frost- kj‘úkum, svo að einungis verður um tvo kosti að velja, að klakaður kláfurinn sökkvi í sjó eða leiti landvars, þar sem lítil skip vaskra varðmanna fái á þeim fœri. En sigrinum meiri, svo mjög sem við þurf- um hans og svo mikið öryggi sem honum fylg- ir, er fyrir alla, sem ungir eru, sú mikla stað- reynd, að íslenzka þjóðin hefur sameinazt til ósigrandi einingar á örlagastund. Sú staðreynd bendir ykkur, eggjar ykkur, sœrir ykkur til þess að minnast þessarar stundar, hvenœr sem syrtir í álinn fyrir þjóðinni, sópa burt gjörn- ingaþoku smámunaseminnar, dœgurrígsins og klíkuhyggjunnar og sameinast jafnt í sókn sem vörn til mikilla og ómótstœðilegra átaka. Þá verður hin eftirminnilega landhelgisvarzla sjómanna okkar og allrar þjóðarinnar þessar örlögþrungnu vikur og mánuði upphaf mann- helgisvörzlu, sem ekkert afl fœr sigrað. IIIE R KI IJ.M.F.Í. Nokkur félög og einstaklingar eiga enn eftir að gera skil vegna merkja U,M.F.l. Framkvæmdastjóri treystir því, að af- gangsmerki og greiðsla fyrir seld merki verði send skrifstofu sambandsins fyrir næstu mánaðamót. SKIIMFAXI Sambandsstjórn og ritstjóri Skinfaxa skora á ungmennafélaga að senda blaðinu fréttir og myndir — og ennfremur grein- ar um þau mál, sem þeir bera fyrir brjósti.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.