Skinfaxi - 01.07.1958, Síða 5
SKINFAXI
69
GUÐMUNDUR IXGI RHISTJÁNSSON
gefur út nýja ljóðabók í haust, og er það
vonum seinna. Þessi ljóðabók skáldsins flyt-
ur mörg kvæði og er hin myndarlegasta. Sér-
staklega mega ungmennafélagar fagna þessari
ljóðabók. Fyrst er það, að Guðmundur Ingi hef-
ur ávallt verið einn hinn trúasti og áhugasam-
asti í þeirra hópi, og svo er hitt, að hann er
öðrum fremur skáld hins jákvæða, — starfs og
gróanda. Þessi bók mun og heldur ekki bregðast
vonum vina skáldsins. — Bókinni mun hafa ver-
ið valið nafnið Sóldögg. Það er Norðri, sem
gefur hana út. Fyrri bækur skáldsins eru Sól-
stafir (1938) og Sólbráð (1945). — Ritstjóri
Skinfaxa komst í handritið af nýju bókinni og
hnuplaði úr henni þvi kvæði, sem nú er birt hér
í blaðinu.
EUÐMUNDUR INGI KRIGTJANSSGN :
^y4ttu bförl? ?
Áttu litla björk við bœinn,
björk í tryggum reit,
unaðslundi svala og sólar
sumardœgrin heit?
Liggja þar í laufum grœnum
lífs þíns fyrirheit?
Meðan dögg á grasi glitrar,
geislar þerra mörk,
andar Ijúft að allra vitum
ilmi af hússins björk.
Feginsdraumur frjálsra daga
fer um ungan börk.
Meðan vex hún ár frá ári,
er hún gœfa þín,
lætur vaggast blítt í blænum
birkilaufin sín,
meðan yfir börn og býli
brosmild sólin skín.
Farsœl eign er björk, sem brosir
bœjarstafni við,
boðar þínum unglingsaugum
yndisleik og frið,
íslenzk grein af gömlu bergi
grædd í nýjan sið.