Skinfaxi - 01.07.1958, Qupperneq 7
SKINFAXI
71
að þroska sérkenni sín, á að vera norræn
sam- og fjölvitund i senn, sem veit og
skilur, að liið norræna samfélag er fyrst
og fremst samfélagið um þjóðlegt frelsi
og þjóðlegan rétt.
En slíkur skóli var einmitt stofnaður
hinn 1. maí 1958 á Snoghöj við Litla-
heltisbrúna. Hann stendur við alfaraleið
á einum þeim fegursta stað, sem til er
i allri Danmörk. Niður að Litlabelti blóm-
skrýddur trjágarður og úr gluggum skól-
ans útsýni til hinnar fögru brúar, sem
tengir Jótland og Fjón.
Norræni lýðháskólinn mun taka
ákveðna og virka afstöðu gagnvart lausn
þeirra vandamála, sem nú tálma frjálsri
þjóðlegri þróun og eðlilegum samskiptum,
svo sem sjálfstæðismáli Færeyinga, mál-
haráttu Norðmanna og handritakröfum Is-
lendinga, þar sem skólinn mun eindregið
l)eita sér fyrir þvi, að liandritin verði af-
lient Islendingum. Þá fyrst, þegar þessi
vandamál hafa verið leyst, verður unnt
að halda því fram með fyllsta rétti, að
Norðurlönd séu heimkynni þjóðlegs rétt-
ar og fullkomins þjóðlegs frelsis.
Út frá þessu sjónarmiði mun skólinn
einnig freista þess að fjalla um þær sam-
vinnutillögur, sem berast okkur Norður-
landabúum utan að, tillögur um sameigin-
lega markaði og frjálsa verzlun.
Okkur er það áhugamál, að í afstöðunni
til slíkra tillagna og fyrirætlana, megi
einnig gæta norrænnar einingar — að okk-
ur takizt líka út á við, í hinum miklu
samvinnnuhringum, sem við verðum til-
neydd að gerast liður í, að varðveita þjóð-
lega norræna samvitund.
Skólinn mun starfa samfellt frá 1. nóv-
ember lil 1. mai, og að sumrinu verða
svo haldin mörg hálfsmánaðar námskeið.
Um skólavist í vetur liafa þegar sótt nem-
endur frá öllum Norðurlöndum, og hér
vil ég sérstaklega taka það fram, að okk-
ur er ungt fólk frá íslandi mjög velkomið.
Gefst öllum þátttakendum tækifæri til að
sækja um dvalarstyrki til Norrænu félag-
anna.
Við skólann starfa bæði norskur og
sænskur kennari, og auk þess mun liinn
kunni islenzki rithöfundur, Bjarni Gísla-
son, koma þangað öðru hverju og flytja
þar fyrirlestra.
Það er von okkar, að islenzkt æskufólk
muni fagna stofnun hins norræna lýðhá-
skóla i Snogliöj og hjá því vakna áhugi
fyrir að koma þangað til starfs og náms.
ÚTBREIÐSLA OG
IIMIMHEIIVITA SKIIMFAXA
Skrifstofa U.M.F.I. vill eindregið minna
ungmennafélaga á það, að slcilyrði fyrir
að Skinfaxi geti rækt lilutverk sitt, er að
hann komist til sem allra flestra, og í
rauninni er það einstakt tómlæti af hendi
ungmennafélaga að kaupa ekki blaðið og
lesa. Er það þvi eindregin áskorun til fé-
laganna, að kaupa blaðið og fá aðra til
að kynna sér það og gerast kaupendur
þess. Ennfremur gefur að skilja, að nauð-
syn ber til að kaupendurnir séu skilvisir,
og mælist framkvæmdastjóri U.M.F.I. til
þess, að allir, sem enn liafa ekki gert skil,
sendi andvirði þessa árgangs og ógreiddra
eldri árganga nú þegar.