Skinfaxi - 01.07.1958, Page 19
SKINFAXI
83
Ekki var ég fyrr lieim kominn, en til
mín hringdi Valdimar á Klaustri og til-
kynnti mér, að Slysavarnafélag Islands
bæði mig fyrir hvern mun að fara á ný
á standstaðinn og reyna að fá mennina i
land. Ég hringdi strax á bíl og hélt af stað,
ásamt bílstjóra og þriðja manni. Var síð-
an dreginn út í skipið Vilhjálmur Eyjólfs-
son á Hnausum. Hann mælir á enslca
tungu, og lagði hann að skipstjóranum um
að fara þegar í stað í land, ásamt þeim
þrem mönnum, sem með honum voru enu
i skipinu. En þessi ferð varð jafnárangurs-
laus og hin fyrri.
Þegar Vilhjálmur liafði borið mér og
þeim, sem með mér lcomu, þá fregn, héld-
um við heim, en þeir fimm, sem verið
höfðu kyrrir á strandstaðnum, fóru þaðan
ekki.
Seint um kvöldið kom tilkynning um
það frá skipstjóranum, að liann mundi vf-
irgefa skipið einlivern tíma nætur. Fór ég
þá enn á strandstaðinn, og var Markús
Runólfsson í för með mér. Biðum við þar
sjö saman og höfðum björgunartækin á-
vallt á takteinum. Þegar klukkan var orð-
in fjögur um nóttina, hafði skipstjóri loks
haft sig í að yfirgefa skipið. Voru þeir fé-
lagar dregnir í land allir fjórir. Jón Björns-
son bílstjóri á Klaustri kom með Brynleif
Steingrímsson lækni á strandstaðinn, og
talaði liann við skipverja og athugaði um
heilsufar þeiri’a, strax og þeir komu í land.
Nú var lialdið heim, og komum við til
bæja klukkan liálf sex á sunnudagsmorg-
un. Síðan dvaldi öll skipshöfnin þarna á
bæjunum þangað til á mánudagsmorgun.
Þá fóru skipverjar út í togarann og sóttu
það af dóti sínu, sem var þeim nauðsyn-
legast. Þá var þannig komið, að hægt var
að ganga þurrum fótum út i skipið.
Þegar þeir voru komnir í land á ný,
hárust boð um, að þeir ættu að vera komn-
ir upp að Kirkjubæjarklaustri klukkan
fimm þennan sama dag. Var þeim ekið
heim til bæja, en því næst upp á flugvöll-
inn lijá Klaustri, og þaðan flugu þeir til
Reykjavíkur.
Þessi frásögn kemur i stað smásögu að þessu
sinni, en næsta og síðasta hefti þessa árgangs
mun flytja tvær stuttar sögur.
Þarna voru að verki margir ungmenna-
félagar úr Meðallandinu, og sýnir þessi stutt-
orða frásögn, að þeir hafa brugðið fljótt og
vel við, þá er strandfregnin barst, og hvorki
sparað tíma né fyrirhöfn til að verða skipbrots-
mönnum að liði. Skinfaxi þakkar Sigurgeiri Jó-
hannssyni björgunarsöguna og vill gjarnan fá
og flytja frásagnir úr athafnalifi hinna dreifðu
byggða. Ritstjóri.
Togarinn, sem myndirnar eru af, er King
Sol, sem hefur komið mjög við sögu landhelgis-
vörzlunnar, síðan landhelgin var færð út.
Séra Bragi Friðriksson
hefur lofað Skinfaxa viðtali í næsta hefti
um hið mikla og eftirtektarverða starf, sem
hann hefur forystu fyrir í höfuðstaðnum í þágu
æskulýðsins.