Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.07.1958, Síða 27

Skinfaxi - 01.07.1958, Síða 27
SKINFAXI 91 ÍSLENZKU ÞJÓÐARIXNAR 1 lok bókmenntakynningar þeirrar, sem fram fór i liátíðasal Háskóla Islands á vegum Almenna bókafélagsins vegna sex- iugsafmælis GuSmundar Gíslasonar Haga- líns, flutti liann þessar stuttorðu þakkir og kveðjur: „Ég þakka af heilum hug þá vinsemd og virðingu, sem mér er sýnd með þess- ari samkomu, þakka Almenna bókafélag- inu og hinni virðulegu stofnun Háskóla Islands, sem hefur látið i té hátíðasal sinn. Ég þakka gömlum og traustum vini mín- um, prófessor Alexander Jóhannessyni, fyrir vinsamlegt ávarp, Andrési Björns- syni, skrifstofustjóra, fyrir liið vel samda og skemmtilega erindi, og hinum ágætu leikurum, er hér bafa túlkað kafla úr ritum mínum, sem engin eru nema dauf- ur endurómur þeirrar miklu hljómkviðu, sem þetta blessaða land og þessi gáfaða þjóð hafa leikið á strengi hjarta míns og hugar frá fyrstu bernsku til þessarar stundar. Þökkum fylgja löngum óskir, og ég get eldvi staðið hér svo, að ég óski ykkur elvki einhvers sem einstaklingum og Is- lendingum. Þjóðin á aðeins ein grundvallarverð- mæti. Það eru mannsefnin, unga fólkið í þessu hrjóstruga, fagra og tigna landi. Ef helgi þessará verðmæta verður ekki virt, ef guðs gáfur liinna ungu íslendinga fá ekki að gróa í frjómold íslenzkrar sögu og menningar, án þess að sprotar þeirra séu skertir og skornir, ef þeir fá ekki að njóta heimsdaggar og liiminsólar, heldur verða settir undir litað gler kreddukenn- inga og á þá varpað tröllskuggum kvala- losta bölmóðra barðstjóra, þá eru öll önn- ur verðmæti fánýt, aflasæld landgrunns- ins og hafdjúpanna, unaðsgrænka egg- sléttra töðuvalla, kjarngresi afréttanna, afl fossanna og varmi jarðar — og sið- ast en ekki sízt landsins f jölbreytta fegurð og tign, — þá verður binn ungi Islend- ingur: „asni, sem upp i er hnýtt og íslenzkar þrælshendur teyma.“ Þvi er það ósk mín, að íslenzka þjóðin megi standa vörð um mannhelgi jafnvök- ul, óhvikul og virðulega viss um rétt sinn og málstað og hún stendur nú um land- lielgi. „Drjúpi hana blessun Drottins á um daga heimsins alla.“ Stjórn U.M.F.Í. bað ritstjóra Skinfaxa fyrir afmæliskveðju til hans sjálfs, en vegna þrengsla í blaðinu þykir ritstjóranum hæfa, að hún bíði næsta heftis. Bókmenntirnar og félagsmálin. Næsti kafli fjallar um val smásagna og sögu- kafla til framsagnar. Siðan verður komið að samlestri úr leikritum — og því næst vikið að bókmenntunum sem viðfangsefni leshringa.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.