Skinfaxi - 01.04.1962, Page 13
Þráinn Þórisson. Þorst. Glúmsson. Óskar Ágústsson. Friðeeir Björnsson. Ármann Pétursson.
Framkvæmdanefnd mótsins.
gestir að streyma heim að Laugum. Hér-
aðssamböndin höfðu ákveðið svæði til um-
ráða fyrir tjöld sín, risu þau nú hvert af
öðru með merki héraðssambandanna við
hún.. Sum héraðssamböndin reistu skraut-
hlið framan við tjöld sín. Söngur og gleði
ríkti í tjaldborginni um kvöldið, þó var
gengið tímanlega til svefns, því íþrótta-
mennirnir hugsuðu gott til komandi dags.
Tjöldum mótsgesta fjölgaði ört er á
kvöldið leið. Á sunnudag var þar risin mik-
il tjaldborg.
Kl. 9 á laugardagsmorgun fór fram fán->-
hylling og fjöldasöngur við tjörnina heima
við skólann. Að þeirri athöfn lokinni gengu
íþróttamenn fylktu liði undir blaktandi
fánum til íþróttavangsins og mannfjöldinn
fylgdi eftir. Þar fór mikil og glæsileg fylk-
ing æskumanna. Þjóðfáninn, fáni U.M.F.Í.
og fánar héraðssambandanna blöktu yfir
fylkingum og gáfu göngunni virðulegan og
hátíðlegan svip. Mannfjöldinn var hljóður
og hugfanginn. Hátíð fór í hönd. Gangan
staðnæmdist fyrir framan ræðustólinn á
íþróttavellinum. Þar flutti séra Eiríkur J.
Eiríksson, sambandsstjóri U.M.F.I.,
snjalla setningarræðu. 11. landsmót U.M.
F.í. var sett.
Allan laugardaginn fór fram keppni í
íþróttum. Gestum fjölgaði mjög er á dag-
inn leið. Um kvöldið var haldinn útifundur
heima við Laugaskóla. Umhverfis tjörnina
var þéttskipað áheyrendum. Umræðuefni
fundarins var æskan og ungmennafélögin.
Ræðumenn voru fimm, einn frá hverjum
landsfjórðungi og einn frá U.M.F.l. Ræðu-
menn voru þessir: Sigurður Greipsson, Ingi
Tryggvason, Jón Hjartar, Kristján Ing-
ólfsson og Skúli Þorsteinsson, sem var
fundarstjóri. Á fundinum fór einnig fram
íþróttasýning undir stjórn Björns Jóns-
sonar og kórsöngur undir stjórn Páls Jóns-
sonar. Sól skein í heiði mestan hluta dags-
ins, en áður en fundi lauk kom regnskúr
mikil, en enginn lét sér bregða. Um kvöldið
var stiginn dans á þrem stöðum. Þannig
leið fyrri dagur mótsins.
Kl. 9 á sunnudagsmorgun fór fram fána-
hylling og fjöldasöngur við tjörnina.
S K I N F A X I
13