Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1962, Page 17

Skinfaxi - 01.04.1962, Page 17
ing, úr því sem komið var, að doka við, unz flest afmælisrit héraðssambandanna væru komin út, svo að þeirra mætti njóta að nokkru og einnig gagnasöfnunar þeirra við gerð heildarsögunnar. Einnig yrði þá fremur komizt hjá óþörfum endurtekning- um á því, sem heima á í ritum um héraðs- samböndin einvörðungu. Að minnsta kosti var augljóst, að það mundi horfa miklu glögglegar við, hvernig sníða bæri heild- arsögu samtakanna stakk, þegar ritin um héraðssamböndin væru flest komin út. Það, sem hér hefur verið rakið að fram- an, eru meginástæður þess, að það hefur dregizt fyrir mér eins og raun er á orðin að hefja ritun sögu U.M.F.I., auk þess sem það vill oft verða svo, þegar leysa skal af hendi viðamikið starf í hjávekum, og ekki eru sett um það ákveðin tímamörk, hvenær því skuli lokið, að dráttur verður á meiri en góðu hófi gegnir. Ég hef þó ekki með öllu setið auðum höndum. Ég hef dregið saman ýmis gögn úr þeim rituðum heim- ildum, sem fyrir hendi eru, einkum Skin- faxa og ritum félaga og héraðssambanda. Einnig hef ég haft samband við ýmsa menn, sem mikið og lengi hafa starfað í hreyfingunni og fengið hjá þeim marg- vísleg drög, svo og fengið í hendur handrit að sögu eða þáttum af starfi nokkurra ungmennafélaga. Segja má hins vegar, að heildarsöfnun gagna sé eftir, og grunnur að slíkri sögu- vitun, sem hér er til stofnað, verður ekki lagður nema safnað sé gögnum um megin- drætti í starfi hvers ungmennafélags, sem starfað hefur innan vébanda U.M.F.I. Þetta getur þó ekki orðið skilrík saga hvers einasta ungmennafélags, þó að þessi gögn séu nauðsynleg til skilnings á sögu allrar í Þórhallur j Bjarnarson, j annar aðal- í upphafsmaður 5 ungmenna- félaganna. ( Kvebja frá U.M.F.Í. Stjórn Ungmennafélags Islands vottar minningu Þórhalls Bjarnarson- ar hina dýpstu virðingu og þakkar hið mikla brautryðjandastarf hans innan félagsskaparins. Honum ber að þakka upphaf hreyfingarinnar í því formi, er hún tók á sig fyrstu árin og hefur haldið síðan. En fyrst og fremst þökkum við þann anda, er hann gaf hreyfingunni af eldlegum hugsjóna- áhuga, djörfum baráttuhug, dreng- skap og óeigingjarnri tryggð við draumsýnir æskuáranna, er hann varðveitti til hinztu stundar. Við þökkum upphafsmanninum, en um leið hinum óbrigðula samherja, hvetjanda og vegsögumanni að háu marki, Islandi til heilla og æskulýð þess. Við vottum hinum nánustu hans samúð okkar. Fyrir hönd U.M.F.I. Eiríkur J. Eiríksson. S KIN F AX I 17

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.