Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1962, Blaðsíða 30

Skinfaxi - 01.04.1962, Blaðsíða 30
Spjall um leiklist Fáar þjóðir munu hafa meiri áhuga á leiklist en Islendingar, um það vitnar ekki aðeins ágæt aðsókn að tveimur leikhúsum í Reykjavík, heldur einnig sá mikli fjöldi sjónleikja, sem sýndur er víðs vegar um landið af áhugamönnum. Það er mjög á- nægjulegt að jafnmargir skuli leggja hönd á plóginn á þessu sviði og raun ber vitni, því fátt myndi þroska fólk meira en að glíma við að skapa nýjar persónur og veita þannig orðum höfunda líf, sem aðeins fæst í sem fullkomnustum samleik eftir því sem við á hverju sinni. Ekki eru tök á í stuttu leikhússpjalli að drepa á allt, sem sýnt var í leikhúsum höf- uðstaðarins síðastliðið leikár, enda sumt svo þekkt af öllum almenningi, að þess er lítil þörf, eins og My Fair Lady og Skugga- Sveinn. Strompleiks Laxness hefur áður verið getið í Skinfaxa, en síðar á leikárinu sýndi Þjóðleikhúsið Gestagang Sigurðar Magn ússonar. Efni leiksins er sótt í reykvískt umhverfi. Aðalpersónurnar eru hjónin Auður og Ólafur og læknaneminn Gunnar, sem heldur við Auði. Við þekkjum allt þetta fólk mjög vel. Auður er ósköp venju- leg reykvísk kona, sem alin hefur verið upp í góðum efnum og aldrei þurft neitt fyrir lífinu að hafa. Eins og margar ungar stúlkur í höfuðstaðnum gera giftist hún manni, sem hún telur að geti veitt henni öryggi, ekki vegna þess að hún elski hann. Nýtízku heimilistæki veita henni nægan tíma til að njóta ástríðufullra atlota læknanemans, sem auk hennar nýtur blíðu skólatelpu innan tvítugs, sem einnig er mjög líkleg mynd úr veruleikanum. Eiginmaðurinn ólafur er ekkert nema góðmennskan og trúgirnin, sem hefur elskhuga konunnar sinnar að heimilisvini ásamt öðrum unglingi, sem allt veit, en á allt ógert og hefst ekki handa um neitt. Það sem kemur leikhúsgestum á óvart er þegar þetta reykvíska umhverfi breyt- ist allt í einu í leiksvið, en sennilega verð- ur mönnum það minnisstæðara fyrir vik- ið. Leikendur Þjóðleikhússins hafa oft gert betur en í þessu leikriti og leikstjórn- in var eitthvað slöpp. Þeir, sem bezt fylgjast með leikritagerð, hljóta að hafa veitt því ahygli, að leikrita- höfundar vega æ beinna að neikvæðum þáttum í sálarlífi manna. Tvöfeldni, undir- ferli, fals, hræsni og aðrir neikvæðir eig- inleikar hljóta miskunnarlausa gagnrýni nútíma leikritahöfunda. Vera má að í þessu felist tilraun til að lyfta siðferðilegri þróun mannkynsins á hærra stig. Allir vita að tæknin hefur unnið stórsigra á undanförnum öldum, áratugum og jafnvel árum. Drengskapur mannsins virðist hins vegar ekki öllu þróaðri en hann var t. d. þegar ísland byggðist. Hvar er t. d. að finna í íslenzkum bókmenntum meira mannvit, drengskap og hreinskilni en í Hávamálum ? Einn þeirra höfunda, sem ekki vegur neitt vægilega að því neikvæða hjá mann- inum er Harold Pinter. Leikrit hans, Hús- vörðurinn, var mesta snilldarverkið, sem íslenzkum leikhúsgestum gafst kostur á að sjá síðastliðið leikár og bæði leikstjórn og leikur var með ágætum. 1 Húsverðinum eru aðeins þrjár per- sónur. Tveir bræður, Mick, sem leikinn var af Bessa Bjarnasyni og Aston, leikinn af Gunnari Eyjólfssyni. Þriðja persóna 30 SKIN FAX I

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.