Skinfaxi - 01.04.1962, Blaðsíða 25
Frá setningu Laugamótsins.
ungmennafélög hafa sína eigin skógrækt
arreiti. Byrjað var að jafna land til leik-
vangs í Þrastaskógi á samkomusvæðinu
neðan við Tryggvatré.
22. sambandsþing U.M.F.I.
var haldið að Laugum í Suður-Þingeyj-
arsýslu dagana 28. og 29. júní 1961. Þingið
var mjög vel sótt. Helztu mál þingsins
voru íþróttamál, starfsíþróttir, bindindis-
mál, skógræktarmál, félagsheimilin og
rekstur þeirra og félagslegt uppeldi. Pét-
ur Sigurðsson flutti erindi á þinginu og
forseti I.S.I. ávarp.
Leiksfcirf.
Leikstarf var mikið á vegum ungmenna-
félaganna víðs vegar um landið. Skrifstofa
U.M.F.l. aðstoðaði félögin við útvegun
leikrita o. fl.
Örnefnasöfnun.
Nokkur ungmennafélög unnu að ör-
nefnasöfnun.
Skinfaxi.
Skinfaxi, tímarit sambandsins, kom út í
tveimur heftum, en í einu lagi fyrir árið
1961. Upplagið var 1400 eintök. 1 rit-
inu voru birtar greinar um félagsmál,
íþróttir, menningar- og þjóðernismál,
kvæði, fréttir frá ungmennafélögum, skák-
þáttur o. fl. Árgangurinn kostaði kr. 30,00.
Bindindismál.
Félögin unnu að bindindismálum á sama
hátt og áður. Þau kepptu að því að hafa
samkomur sínar með sem mestum menn-
ingarbrag. Nokkur fræðsla var veitt á veg-
um ungmennafélaganna í ræðu og riti
um skaðsemi áfengis og tóbaks. U.M.F.Í.
er í Landssambandinu gegn áfengisbölinu.
S K I N F A X I
25