Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1962, Page 16

Skinfaxi - 01.04.1962, Page 16
um 80. Talið er að um 9000 gestir hafi kom- ið til Lauga mótsdagana. Frá árangri í íþróttakeppni mótsins var greint í síðasta hefti Skinfaxa. Landsmót Ungmennafélags Islands hafa jafnan vakið þjóðarathygli. Þetta síðasta landsmót fór fram með miklum glæsibrag. Sérstaklega ber að þakka Héraðssambandi Suður-Þingeyinga, héraðsstjóra þess, framkvæmdanefnd, skólastj. Laugaskóia, mótsstjóra, stjórnendum íþróttagreina og öðrum, sem að mótinu unnu, fyrir ágætan undirbúning og fyrirgreiðslu mótsdagana. Kvikmynd var tekin af þessu landsmóti eins og fyrri mótum. Hún geymir svip- myndir og frásögn í fáum dráttum og ber vitni um glæsilegt æskulýðsmót. Undir- búningur mótisins og framkvæmd þess krafðist mikils starfs og árvekni, en þá má ekki gleyma þætti héraðssambandanna, og félaganna heimafyrir. Ekki heldur dugnaði og áhuga íþróttamannanna við æfingar í frístundum. Landsmótið á Laugum var merkur menningarviðburður og bar vott um táp- mikla og glæsilega æsku, sem verðskuldar viðurkenningu og traust. Það bar þess vott, að ungmennafélagshreyfingin er vel vakandi og í vexti. Það var vor og draumur í lofti yfir Laugastað á 11. landsmóti U.M.F.Í. Mun- um svo næsta landsmót og kjörorð Ung- mennaf élaganna: Islandi allt. Það eru nú liðin nokkur missiri síðan óg dróst á það að safna efni og rita sögu Ung- mennafélags Islands. Því verki hefur þó lítt miðað áfram, og eru til þess ýmsar or- sakir. Gert var ráð fyrir, að saga þessi yrði miðuð við þáttaskil fimmtugsafmælis ung- mennafélagshreyfingarinnar hér á landi, en þar sem það afmæli var um garð geng- ið, þegar ég tókst á hendur þetta verk, var auðsætt að ritið gæti ekki komið út á þess- um tímamótum. Þar að auki var ég all- mjög störfum hlaðinn og gat ekki snúizt að verkinu þegar í stað. Við athugun kom einnig í ljós, að það mundi verða allmikið verk og eklci auð- unnið að safna þeim gögnum, sem til sög- unnar þurfti, hjá félögum og rnönnum víðs vegar um land. Ilins vegar kom þá einnig í Ijós, að flest héraðssamböndin og sum fé- lögin voru að vinna að söfnun gagna í eig- in sögu og útgáfu hennar, enda áttu þau fimmtugsafmæli hvert af öðru hin næstu missiri. Virtist því einboðin vinnuhagræð- 16 S K I N F A X I

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.