Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1962, Side 21

Skinfaxi - 01.04.1962, Side 21
Þingeyinga var haldið í Húsavík 23. júní. Framkvæmdastjóri U.M.F.l. var gestur þingsins og flutti þar ávarp og tók þátt í umræðum. Næsta viðfangsefni sambands- ins á síðasta starfsári var landsmótið að Laugum, sem fór fram með myndarbrag, en krafðist mikils undirbúnings. Mikill á- hugi ríkti á þinginu um málefni ungmenna- félaganna. Fast var deilt á sambandsstjórn U.M.F.I. fyrir það að „Skinfaxi" kemur ekki reglulega út og sérstaklega var það vítt, að í síðasta hefti ,,Skinfaxa“ hefði ekki verið sagt frá Laugamótinu síðastlið- ið sumar á viðeigandi hátt með yfirlits- grein og myndum. Bæjarstjórn Húsavíkur bauð þingfull- trúum til kaffidrykkju um kvöldið og voru þar fluttar margar ræður. Formaður sam- bandsins, Óskar Ágústsson, flutti bæjar- stjórn Húsavíkur og Kaupfélagi Suður- Lingeyinga sérstakar þakkir fyrir veitta aðstoð og vinsemd í garð sambandsins og afhenti oddfána H.S.Þ. að gjöf. Einnig færði formaður H.S.Þ. U.M.F.l. myndabók írá landsmótinu að gjöf. Þingið stóð einn ^ag, en var vel sótt. Ungmenna- og íþróttasamb. Austurlands. Héraðsþing Ungmenna og íþróttasam- bands Austurlands var haldið dagana 80. júní og 1. júlí að Eiðum. Framkvæmda- stjóri U.M.F.I. var boðinn til þingsins og flutti þar ávarp og tók þátt í störfum þingsins. Fulltrúa vantaði frá nokkrum félögum. Sóknarhugur ríkti á þinginu um ftiálefni sambandsins. Form. U.I.A. er Kristján Ingólfsson. Skúli Þorsteinsson, fyrsti formaður sambandsins, var kjörinn heiðursfélagi U.I.A. Héraðssamband Vestur-Isfirðinga. 50. héraðsþing Héraðssambands Vestur- Isfirðinga var haldið að Núpi 11. júní 1962. I stjórn voru kjörnir Sigurður R. Guð- mundsson, form., Gunnlaugur Finnsson, ritari, Tómas Jónsson, féhirðir. Góð samfylgd. Hermann Guðmundsson, framkvæmda- stjóri I.S.I., var gestur á héraðsþingum H.S.Þ. og U.I.A. ásamt framkvæmdastjóra U.M.F.I. Hermann flutti ávarp á þingun- um og tók þátt í þingstörfum. 13. sambandsráðsfundur U.M.F.Í. var haldinn í Reykjavík sunnudaginn 16. september 1962. Við fundarsetningu af- henti sambandsstjóri U.M.F.Í., séra Eirík- ur J. Eiríksson, Óskari Ágústssyni, hér- aðsstjóra Héraðssambands Suður-Þingey- inga, þakkarávarp til sambandsins fyrir ágæta framkvæmd á 11. landsmóti U.M. F.l. 1961. Einnig afhenti sambandsstjóri Sigurði Guðmundssyni héraðsstjóra Hér- aðssambands Vestur-lsfirðinga afmælis- gjöf í tilefni af 50 ára starfi héraðssam- bandsins. Aðalverkefni fundarins voru: Breytingar á lögum U.M.F.I. Næsta lands- mót U.M.F.Í. — Næsta sambandsþing U.M.F.l. Næsta sambandsþing tekur loka- ákvörðun um lagabreytingar og næsta landsmót. Lögð var fram skýrsla um starf- semi U.M.F.T. Sjá ársbréfið. Norræn æskulýðsvika. Norræna æskulýðsvikan 1962 fór fram í Svíþjóð og átti U.M.F.l. þar fulltrúa. Gert var ráð fyrir, að Norræn æskulýðsvika yrði haldin á Islandi 1965 eða 1966. S < I N F A X I 21

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.