Skinfaxi - 01.04.1962, Qupperneq 33
bau félög, er áður höfðu starfað í
sveitinni, og rakti síðan sögu ung-
mennafélagsins. Verða nokkur atriði
hennar rakin hér á eftir.
Aðalsteinn Ólafsson frá Melgerði
flutti félaginu frumort kvæði, Ang-
antýr H. Hjálmarsson kennari, Sól-
garði, flutti kveðjur Bindindisfélags-
ins Dalbúans í Eyf. Daníel Kristins-
son flutti ræðu og Jón Stefánsson á
Dalvík ávarpaði samkomuna í nafni
Ungmennasambands Eyjafjarðar í
forföllum Þórodds Jóhannssonar,
flutti félaginu hamingjuóskir U.M.
S.E. og tilkynnti um skarutritað
heiðurs- og þakkarskjal, er síðar yrði
afhent formanni félagsins af ung-
mennasambandinu. Magnús Iiólm
Árnason minntist látinna félaga og
stofnenda. Eru 6 þeirra á lífi. En að-
eins 3 þeirra voru viðstaddir.
Mörg heillaskeyti bárust.
Halldór bóndi Friðriksson í Illeið-
argarði stjórnaði almennum söng.
Eðvarð Sigurgeirsson sýndi kvik-
mynd, og að loknu borðhaldi var stig-
inn dans.
Hér verða rakin nokkur atriði úr
erindi því, er Pálmi Kristjánsson
flutti á afmælinu úr sögu félagsins.
Ungmennaf élag Saurbæj arhrepps
var stofnað 4. júní 1911 að Saurbæ í
Eyjafirði. Voru stofnendur 14. Á
fyrsta árinu bættust svo við aðrir 14, svo
að í árslok var félagatala 28. En félaga-
tala hefur verið allmisjöfn á þessum 50
árum, oft um 30—40 upp í 60—70. Nú
munu vera 47 í félaginu.
Fyrstu stjórnina skipuðu: Formaður
Pálmi Kristjánsson, síðar kennari í Saur-
Standandi: Stjórn Ungmennafélags Saurbæjarhrepps. —
Talið frá vinstri: Ingi Jóhannesson, Stóradal, Jóhann Þór
Halldórsson, Illciðargarði (formaður) og Skjöldur Stein-
þórsson, Skáldstöðum. — Sitjandi eru þrír af stofnendun-
um, sem viðstaddir voru. Frá vinstri: Magnús Kristjáns-
son, 1. varaformaður, Pálmi Kristjánsson, fyrsti formaður
og Magnús Hólm, 1. ritari. (Ljósm.: E.D.)
bæjarhreppi, og ritari og gjaldkeri Magn-
ús Hólm Árnason, síðar bóndi á Krónu-
stöðum, og Pálmi Þórðarson, síðar bóndi
og oddviti í Núpufelli, sem nú er látinn.
Varaformaður Magnús Kristjánsson, síð-
ar bóndi í Sandhólum.
Núverandi stjórn skipa: Jóhann Þór
S K I N F A X I
33