Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 6
húsið. Voru þau mörgum Húnvetningum að góðu kunn. Níu félög sendu fulltrúa á fundinn. Mál- fundafélagið Fjólan hafði helzt úr lestinni, en skarðið fyllti Bindindisfélagið Viljinn í Torfalækjarhreppi. Fjólan kemur síðan ekki meira við sögu. Þessir fulltrúar sátu fundinn: Jón Pálmason, Guðmann Helgason, Hafsteinn Pétursson, Tryggvi Jónasson, Jón Guð- mundsson, Guðmundur Frímannsson, Páll Jónsson, Þorsteinn Bjarnason, Magnús Björnsson, Steingrímur Davíðsson, Jónas Bjömsson, Magnús Jónsson, Ingibjörg Benediktsdóttir, Rannveig Stefánsdóttir, Níels Jónsson, Sigvaldi Sveinsson, Guðrún Teitsdóttir, Sigtryggur Benediktsson. Yms félög sendu breytingartillögur við frumvarpið, er ræða skyldi, og voru sumar þeirra að dómi ýmsra fulltrúanna allmik- ilvægar. Fundurinn kaus þriggja manna nefnd til að samræma tillögurnar og fella þær inn í frumvarpið, ef rétt þætti. Var gefið fundarhlé meðan nefndin starfaði. Er aftur var gengið til dagskrár, lagði nefndin fram nýtt frumvarp að lögum fyr- ir sambandið. Var frumvarp það að veru- legu leyti frábrugðið því, er nefndin fékk í hendur. Frumvarp nefndarinnar var lengi rætt af miklum hita. Sumir fulltrúarnir víttu nefndina harðlega fyrir að fara út fyrir verksvið sitt með því að varpa frumvarp- inu frá 10. febrúar fyrir borð. Atkvæði um frumvarp nefndarinnar féllu þannig, að fyrst var hver einstök grein samþykkt með eins atkvæðis meirihluta, en er leitað var atkvæða um frumvarpið í heild var það fellt með 10:8 atkvæðum. Þessi einkenni- 6 lega niðurstaða atkvæðagreiðslunnar kom fundinum á óvart og vakti svo mikla beiskju sumra fulltrúanna, að fimm af fylgismönnum nefndarfrumvarpsins gengu af fundi. Var þessi fyrsta ganga að sumra sögn illur fyrirboði og vafalaust bar skugga í bili á glæstar vonir. En þrátt fyrir válegar forspár létu fulltrúarnir, sem eftir sátu, ekki bugast, en héldu ótrauðir áfram að ræða þetta breytta viðhorf. Eftir litla stund var ákveðið fundarhlé og sezt að kaffiborði. Yfir rjúkandi kaffinu var rabbað um daginn og veginn. Og er fund- arstörf hófust að nýju, sá þess engan vott, að nýafstaðnar erjur og brotthvarf nokk- urra fulltrúa skyggðu á hugsjónamálin. Var þá fyrra frumvarpið tekið til umræðu og samþykkt einróma með örlitlum breyt- ingum. Fyrstu lög sambandsins voru fábrotin og einföld í sniðum, enda ætlað að vera samnefnari félaga af ýmsri gerð, og sem hvert fór sína leið, þó höfuðmarkmið fé- lagsstarfsins væri á svipuðu sviði. Fyrstu þrjár greinar sambandslaganna eru svohljóðandi: 1. gr. — Félagið heitir Sambandsfélag Austur-Húnavatnssýslu. Síðan var sam- bandið kallað Sambandsungmennafélag Austur-Húnavatnssýslu, S.U.A.H. og enn síðar breytt í U.S.A.H. 2. gr. — Markmið sambandsins er að efla samvinnu milli félaga í Austur-Húna- vatnssýslu. 3. gr. — Tilgangi sínum hyggst sam- bandsfélagið ná með því að halda tvo full- trúafundi ár hvert til þess að ræða áhuga- mál sín. Á stofnfundinum voru rædd auk þessa nokkur mál. Helzt þeirra voru: unglinga- SKINFAXi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.