Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 32

Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 32
Pálmi Jónsson, Akri. Starfstímabilið 1947—1962. Ungmennafélagið Hvöt tók til starfa á ný 27. des. 1947. Og næsta ár gerðist það sambandsfélag U.S.A.H. Félagið hefur sýnt mikla árvekni um íþróttir og átt marga efnilega íþróttamenn, sem skarað hafa fram úr í mörgum grein- um, svo sem Pálma Jónsson, er lengi hefur verið einn færasti íþróttamaður Húnvetn- inga. Félagið hefur tekið þátt í skógrækt í Hrútey og lagt fram starfskrafta til gróð- ursetningar. Iþróttavöllur er í byggingu á Blönduósi, sem félagið hefur að nokkru á sínum veg- um. Félagið hefur stutt skákkeppni ung- mennafélaganna í sýslunni með þátttöku og á annan hátt. Ungmennafélagið Hvöt er einn eignarað- ili að Félagsheimilinu á Blönduósi. Stjórn félagsins skipa nú: Valur Snorra- son formaður, Njáll Þórðarson féhirðir og Þorbjörg Bergþórsdóttir ritari. Málfundafélag Nesjamanna. Þó að félagið hafi verið aðeins um ellefu ára skeið sambandsdeild U.S.A.H., er það elzta félagið í samtökunum, stofnað árið 1905 og hefur síðan starfað til þessa dags óslitið. Frumkvæði að stofnun félagsins hafði Guðmundur Ólafsson kennari, er dvaldi einn vetur við kennslu á Nesjum. Var Guð- mundur þangað kominn af Vesturlandi. Annar aðalstofnandi félagsins var Bene- dikt Benediktsson, seinna verzlunarstjóri á Kálfshamarsvík. Hann var, eftir því sem bezt er vitað, fyrsti formaður félagsins og lengi síðan, eða til ársins 1920, en þá flutti Benedikt til Akureyrar. Á árabilinu frá síðustu aldamótum fram að 1920 fjölgaði íbúum í Nesjum allmikið. Auk sveitabýlanna, sem þá voru mann- mörg, byggðist þorp á Kálfshamarsnesi, en þaðan er útræði ágætt. Munu íbúar þorps- ins á Nesinu hafa verið um skeið 50 til 60 manns. Þann 5. jan. 1913 samþykkti félagið til- lögu formanns síns, B. B., að byggja fund- arhús á Kálfshamarsnesi. í stjórn með Benedikt voru þá: Guðlaugur Eiríksson póstur og Sigurður Jónsson, bóndi, Ósi, síð- ar bóndi á Mánaskál. Þeir E. Hemmert verzlunarstjóri og Karl Berndsen kaupmaður, báðir á Skaga- strönd, afhentu félaginu grunnlóð undir húsið endurgjaldslaust á landi, sem þeir áttu á Kálfshamarsnesi. Hófst stjórn félagsins þegar handa og réði yfirsmið að húsinu, Sigmund Bene- diktsson, nú bónda að Björgum. I septem- ber sama ár var húsið fullgert. Var það timburhús á hlöðnum grunni. Vígslufagnaður í Samkomuhúsi Nesja- manna var haldinn 19. sept. 1913. Næsta vetur, 1913—14, var húsið lánað fyrir 32 SKIN FAX I

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.