Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 14
og falið að boða næsta fund, er henta þætti. Nefndin boðaði til þings síðar á vetrin- um 1938. Voru hin endurskoðuðu lög sam- þykkt og stjórn kosin, sem starfaði til næsta reglulegs héraðsþings. Kosnir voru: Halldór Jónsson, Sigurður Bjömsson og Steingrímur Davíðsson. Yms framtíðarmál voru rædd á þing- inu, þó að ekki verði þeirra getið hér. Næsta reglulegt héraðsþing var háð á Blönduósi 13. maí 1939. Form. sambands- ins, Halldór Jónsson, setti þingið. Sjö umf. sendu fulltrúa, en ekki er þó ljóst, hvort þau voru öll skráð reglulegir meðlimir sam- bandsins. Auk venjulegra aðalfundarstarfa tók þingið til meðferðar önnur mál. Helzt þeirra voru: Sundlaugin á Reykjum og sundkennsla þar. Samþ. var að fela stjórn S.U.A.H. að hlutast til um bætta aðstöðu á Reykjum til sundnáms og iðkunar ann- arra íþrótta. Skógrækt taldi þingið nauð- synlegt að styðja og samþykkti að láta at- huga, hvar í héraðinu leyndust skógarleifar og hvort tiltækilegt þætti að friða þær. Bindindismál voru mikið rædd og skorað á sambandsdeildirnar að vinna markvisst að bindindissemi allra félagsmanna, þó einkum unglinga. Enn var bindindismálið rætt á héraðsþingi árið 1940 og var svipuð tillaga samþykkt, en þar segir m. a. „að hefja skuli baráttu fyrir algjöru bindindi allra umf.“ og „unz því verði fram komið, þá gildi algjört bindindi á fundum og sam- komum félaganna“. Tillagan var samþykkt með tíu greiddum atkvæðum, en átján full- trúar sátu fundinn. Héraðsþingið 1940 tekur algjört upp þráðinn frá þingum sambandsins fyrir 1930. Auk bindindismálsins var ákveðið, að undirbúa árleg héraðsmót, þar sem fjöl- breyttar íþróttir skipuðu rúman sess, ásamt margs konar öðrum þjóðlegum skemmtunum. Þá var rætt um sund- kennslu á Reykjum, verndun skógarleifa, fjölgun skrúðgarða á heimilum, kynningu sambandsdeildanna, sambandsmálið og þegnskylduvinnu. En Steingrímur Davíðs- son hafði flutt erindi um málið á þinginu. Um öll þessi málefni voru ályktanir gerð- ar, sem samþykktar voru einróma. Þingið sátu fulltrúar frá fimm félögum, en sex eru talin í sambandinu. 1 samband- inu voru í árslok 1939, skv. ársskýrslu S.U.A.H., sex ungmennafélög: Umf. Vatnsdælinga með 50 félaga — Þingbúa — 56 — — Bólstaðarhlíðarhr. — 31 — — Vorboðinn — 23 — — Vorblær — 46 — — Fram — 32 — Samt. 238 félagar Eignir Umf. Vatnsdæla .... kr. 6169,00 — — Þingbúa .... — 1084,00 — — Bólstaðarhlíðar — 250,00 — — Vorboðinn .... — 475,00 — — Vorblær .... — 116,00 — — Fram ........... — 1297,00 og eignir félaganna alls kr. 9391,00 Tíu árum áður voru líka sex félög í S.U. A.H., er töldu alls 120 félagsmenn. Eftir árið 1940 fór fjárhagur þjóðar- innar ört batnandi. Framkvæmdaþrá henn- ar og verkmenning óx hröðum skrefum. Við hitaskin hækkandi sólar óx samtökum umf. í Húnavatnssýslu ásmegin svo sem um allt land. Framundan blasti við bjart starfssvið. Hugsjónirnar, sem um stund höfðu blundað, bærðu á sér á ný og hlutu 14 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.