Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 19

Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 19
urðsson í langstökki og Úlfar Björnsson í kúluvarpi. Á landsmóti U.M.F.Í., sem haldið var á Þingvöllum 29. og 30. júlí 1957, vann sveit U.S.A.H. 4x100 m. boðhl. 1 sveitinni voru: Sigurður Sigurðsson, Sigurgeir Stein- grímsson, Hörður Lárusson, Pálmi Jóns- son. Sama ár varð Úlfar Björnsson Norð- urlandsmeistari í kúluvarpi. Á meistara- móti Norðurlands 1958 urðu sigurvegarar í þrístökki og kúluvarpi þeir Sigurður Sigurðsson og Úlfar Björnsson. Á lands- móti U.M.F.Í. 1961 að Laugum hlaut Guðl. Steingrímsdóttir bikar fyrir flest stig í kvennagreinum. Á kvennameistaramóti ís- lands 1961 varð Guðlaug Steingrímsdóttir íslandsmeistari í 100 m hlaupi. Á Laugum sama ár 12. og 13. ágúst varð Guðlaug Norðurlandameistari í 100 metra hlaupi. Á landsmótinu að Laugum 1. og 2. júlí 1961 vann U.S.A.H. 4x100 m boðhlaup kvenna. Sveitina skipuðu: Ásta Karlsdótt- ir, Margrét Sveinbergsdóttir, Guðlaug Steingrímsdóttir og Kristín Lúðvíksdóttir. Á Laugamótinu varð Valdimar Steingríms- son Norðurlandameistari í 200 m hlaupi. Á kvennameistaramóti á Akureyri 1. og 2. sept. 1962 varð Guðl. Steingrímsdóttir Islandsmeistari í 100 m og 200 m hlaupi og sama ár varð hún Norðurlandsmeistari í 200 metra hlaupi á 27,7 sek., sem er jafnt gildandi Isl.meti. Danmerkurferð. Árið 1961 sendi U.M.F.Í. fjölmenna sveit íþróttamanna til Danmerkur, til keppni í frjálsum íþróttum. Frá U.S.A.H. voru vald- ar til fararinnar: Guðl. Steingrímsdóttir, Margrét Iiafsteinsdóttir, Ásta Karlsdóttir Frá keppnisferðalagi U.M.F.Í. til Danmerkur 1961. Boðhlaupssveitin, sem setti íslandsmet í 5X80 m boðhl. Fx-á vinstri: Ásta Karlsdóttir (USAH), Mar- grét Hafsteinsd. (USAH), Margrét Sveinbergsd. (USAH), Helga ívarsd. (HSK) og Guðlaug Stein- grímsd. (USAH). og Margrét Sveinbergsdóttir, sem kepptu í kvennagreinum. Þá fór og Valdim. Stein- grímsson, er keppti í 100 m hlaupi og boð- hlaupi. í förinni setti Guðlaug Steingríms- dóttir nýtt U.S.A.H. met í 80 metra hlaupi og náði beztum árangri í 100 metra, og 200 metra hlaupi. Mótið fór fram í Vejle 22. til 26. júlí. Lofaði íþróttafólkið fararstjórn og móttök- ur í Danmörku. íþróttastarfið heima. Svo sem ljóst má vera, hefur U.S.A.H. og sambandsdeildir þess unnið mikið og fórnfúst starf að íþróttamálum á sl. ára- tugum og ekkert til sparað að árangur næðist sem beztur. Hér verður starfsem- inni þó ekki lýst, nema hvað fram kemur S K I N F A X I 19

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.