Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 29

Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 29
Páll Árnason. Ágrip af þróunarsögu Vorboðans 1937 til 1962. Aftur er komið vor í félagslífi Langdæl- inga. Vorboðinn kom á jólaföstu, vorstöif hófust 22. janúar 1938. Þá hófust aftur reglulegir fundir félagsins, rætt um störf félagsins í næstu framtíð og félagar brýndu hver annan til dáðríkra starfa. Nokkrir þeirra, er fremst fóru á fyrstu starfsárum félagsins voru horfnir úr daln- um, en aðrir, þó aldnir væru nú að árum, fögnuði af hrærðum huga vorkomunni. Ungir voru þeir sem áður í anda. Sannur ungmennafélagi eldist ekki. Æskufólkið streymdi á ný inn í félagið, með bjartar vonir og háleit heit. Blaðið hóf göngu sína á ný og varð fjöl- breytt að efni sem fyrr. Blað félagsins er stærsta og efnisríkasta félagsblað í hérað- inu og það eina, sem út hefur komið nær óslitið til þessa dags, eða í fjörutíu ár. Hópferðir hafa margar verið farnar á vegum félagsins. Farið hefur verið u'm heimahéraðið, skoðaðir merkir staðir og gengið á fjöll, m. a. Spákonufellsborg. Þá hefur verið ferðazt um fjarlæg héruð og skoðað það bezta, er þau hafa að bjóða. Árið 1956 fór félagið til Austurlands — í Hallormsstaðaskóg og víðar, 1957 til Þing- valla á afmælismót U.M.F.f. og 1959 um byggðir Breiðafjarðar. í þeirri ferð var gengið á Helgafell. Ekki var litið aftur og óskir fram bornar. Mætti álykta, að bænir ferðafólksins hafi verið heyrðar, því að svo mjög hefur vegur félagsins farið vaxandi síðan, þó áður væri mikill í mörgum grein- um. Pétur H. Björnsson. Um gönguna á Helgafell orti formaður Vorboðans, Pétur H. Björnsson, fallegt kvæði. Þetta eru síðustu erindin: Að gjöra bæn sína beztu, bara vera ekki hálfur. Óskirnar rætast alltaf ef þú trúir því sjálfur. Hátt gnæfir Helgafellið, til himins er stigi frá jörðu. Þar upp fara óskir og bænir. Englarnir stigann gjörðu. Trjárækt. Félagið byrjaði að planta trjám árið 1944 í reit, sem það átti í Glaumbæ í Langadal. Var því haldið áfram næstu tvö árin. Árið 1947 gaf Jónatan Líndal land undir skógrækt á Holtastaðahöfða, vestan S KIN FAX i 29

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.