Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 20

Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 20
Guðlaug Steingrímsdóttir. í örstuttu ágripi af sögu sambandsdeild- anna og sjá má af afrekaskrá U.S.A.H. Andlegar íþróttir. Hér fyrr í söguágripi S.U.A.H. og U.S. A.H. er nokkuð getið ýmissa andlegra íþrótta og verður því látið nægja að geta einnar enn, sem ekki er áður nefnd. Skákkeppni. U.S.A.H. tók upp þá nýbreytni árið 1959, að efna til sveitakeppni í skák, og hefur hún síðan farið fram árlega. Flest félögin hafa sótt mótin og þátttaka einstaklinga verið mikil. Keppnirnar hafa farið fram að vetrin- um og verið háðar á Blönduósi. Starfsemin hefur glætt mjög áhuga hér- aðsmanna á þessari gamalkunnu þroskandi íþrótt. Jónas Halldórsson úr Umf. Þingbúa er sem stendur Norðurlandsmeistari í skák. Úrslit í sveitakeppni í skák 1961. Vinningar Umf. Hvöt á Blönduósi............... 6 — Þingbúa, Sveinsstaðahreppi .. 15i/2 — Vorboðinn, Langadal ....... 14 — Húnar, Torfalækjarhreppi .. 1014 — Svínavatnshrepps .......... 9^4 — Vatnsdælingur ................ 814 — Fram, Skagaströnd ......... 6 Árið 1962 tóku aðeins fjögur félög þátt í keppninni og varð röð þeirra þessi: Vinningar Valdimar Steingrímsson og Sigurður Geirdal að loknu 200 m hlaupinu á meistaramóti Norðurlands 1960, þar sem Valdimar sigraði á nýju USAH-meti 23,4 sek. og Sig. varð 3. Umf. Vorboðinn ................. 10 — Húnar ...................... 4 — Þingbúa .................... 3 — Hvöt ....................... 2 Þessi lægð, er síðasta mótið sýnir, er þegar að fjarlægjast og háþrýstisvæði að myndast. Mörg fleiri menningarmál en hér hafa nefnd verið, hefur U.S.A.H. haft til með- ferðar og veitt nokkra úrlausn á einn eða annan hátt. Má og geta þeirra, er saga sambandsins verður endurrituð eftir e. t. v. áratug eða aldarfjórðung. 20 S K I N F A X I

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.