Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 21

Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 21
LOKAORÐ Þegar dæma á um starf æskulýðsfélag- anna og ávexti þess til nytja fyrir héraðið og þjóðfélagsheildina, verða forsendurnar að vera ljósar. 1 fyrsta lagi starfsskilyrðin, sem félagssamtökunum voru búin, efna- hagur þjóðarinnar, þroskastig hennar og hvar hún var stödd á þróunarbraut sjálf- stæðismálanna. Þessu hefur verið reynt að lýsa að nokkru. Ef það liggur ljóst fyr- ir, er auðvelt að skilja, að félagssamtökin byggðust fyrst og fremst á hugsjónum. Hlutverk félaganna var á morgni sögu þeirra að bera fram hugsjónir og afla þeim fylgis. Félagssamtökin voru kölluð til að boða vorið í þjóðlífinu og vinna vorverkin, sá og hlynna að nýgræðingnum. Þau voru árgalinn, er hrópaði orð aldamótaskáldsins yfir borg og byggð: „Vöknum og tygj- umst, nóg er til að sinna.“ Samtökin veittu eftir beztu getu hverju göfgu máli brautargengi í ræðu og riti. Þau börðust gegn öllum óheillastefnum og veittu viðnám hvers konar bellibrögðum óhlutvandra manna, er skaðað gátu þjóð- ina. Illgresið vildu þau útlægt gera úr skrúðgörðum þjóðar sinnar. Um það vitna m. a. greinar Jónasar Jónssonar frá Hriflu í blaði U.M.F.Í., Skinfaxa, er hann nefndi ,,Filistear“. En öllu framar og jafnsnemma hlúðu félögin að nytjagróðri og hverju fögru blómi í þjóðgörðunum. Þau veittu næringu, svo sem geta leyfði, hverjum ungsprota, sem vildi verða að stórum hlyni. Á þessum vettvangi náðu samtök umf. miklum árangri. Ungmennafélagar öðluðust trú á það bezta, sem lífið hefur að bjóða, trú á kærleikann, sannleikann og réttlætið, trú á landið og þjóðina. Ung- mennafélagi ber í brjósti fölskvalausa ætt- jarðarást. Ungmennafél. brýndu fyrir fé- lögum sínum að hreinsa og fegi’a móður- málið, endurvekja forna þjóðlega hætti og heilbrigt þjóðarstolt. Þau sungu hátt og hvellt hið fagra kvæði, er þeim var til- einkað, þar sem m. a. eru þessar ljóðlínur: „Notið, vinir, vorsins stundir, / verjið tíma og kröftum rétt, / búið sólskært sumar undir / sérhvern hug og gróðurblett.“ „Frjáls og djarfur stattu í stafni, / stýrðu beint og sveigðu ei af.“ Þetta var aðalsmerki umf. Enginn var hlutgengur þar, nema hann fylgdi því, sem hann vissi sannast og réttast. Þannig hef- ur það verið og vonandi verður um alla framtíð, þó að vitanlega fyrirfinnist alltaf einhverjar undantekningar. Enginn skógur er án kalkvista. Margir vitrustu og djörfustu íslenzkir þjóðmálaskörungar hafa verið ungmenna- félagar á æskuárum og mótazt þar að veru- legu leyti. Einn þeirra, Tryggvi Þórhalls- son, sagði m. a.: „Ungmennafélögin hafa mótað mig meira en nokkur annar félags- skapur og orðið mér til ómetanlegs gagns.“ Og: „Slíkan félagsskap vildi ég helzt kjósa börnum mínum til handa.“ Margir munu vilja undirstrkia þessi orð og mæla á sömu leið. Þá má taka undir orð Ingólfs Jóns- sonar ráðherra, er hann mælti m. a. á sam- bandsþingi U.M.F.Í. að Laugum árið 1961: „Hinum traustu og farsælu baráttumönn- um liðins tíma verður bezt þakkað með því að viðhalda þeim eldmóði, sem einkenndi frumherja ungmennafélagshreyfingarinn- ar hér á landi.“ Félagssamtökunum, sem að framan hef- ur að nokkru verið frá sagt, hefur að vísu ekki auðnazt að hrinda sumum stefnumál- um sínum í framkvæmd nema að litlu leyti S K I N F A X I 21

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.