Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 33

Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 33
barnakennslu og mun barnaskólinn hafa verið þar síðan á hverjum vetri. Þetta litla félagsheimili Nesjamanna var hið fyrsta sinnar tegundar í Austur- Húnavatnssýslu. Liðu meira en tveir ára- tugir, þar til tvö önnur æskulýðsfélög í héraðinu byggðu sín fundahús. Ber þetta framtak þeirra Nesjamanna fagurt vitni um framsýni, einhug og fórnarvilja. Sam- hliða bættum starfsskilyrðum fyrir félagið var barnaskólanum búinn góður samastað- ur. Fyrir tólf árum síðan var húsið endur- bætt og stækkað verulega. Málfundafélag Nesjamanna barðist fyr- ir ýmsum umbótamálum í byggðarlaginu, svo sem samgöngubótum og ræktunar- framkvæmdum o. fl., sem til framfara horfði. En hvað hamlaði því, að svona áhugaríkt og athafnasamt félag tæki þátt í heildar- samtökum æskulýðsfélaganna í héraðinu? Einfaldlega mikil vegalengd og torsótt. Af félagssvæðinu til höfuðstöðva sam- bandsins á Blönduósi eru um 60 km, og leiðin ekki bílfær fyrr en á fimmta tugi aldarinnar. Á síðari árum hafa þeir bræður Sigurð- ur og Ólafur Pálssynir í Króksseli og Frið- geir Eiríksson bóndi, Sviðningi, skipað stjórn félagsins. Friðgeir hefur verið í stjórninni yfir þrjátíu ár. Nú er félag Nesjamanna fámennt, því að byggðin þarna hefur eyðst mjög á síðari árum. Ungmennafélagið Fram var stofnað á Skagaströnd 17. október 1926. Sem önnur slík félög hefur félagið haldið málfundi, þar sem rædd voru ýms menningarmál, er snertu umhverfið eða þjóðarheiídina, auk beinna framkvæmda félagsins sjálfs. Félagið tók snemma að æfa leikþætti og síðar stór leikrit. Sú starfsemi hefur tekizt með ágætum, og er á mikilli þroskaleið. Og þar sem ekki er starfandi leikfélag á Skagaströnd, hefur þetta menningarstarf félagsins verið ómetanlegt andlegri þróun kauptúnsins. Félagið hefur um mörg ár sýnt sjónleiki á Húnavökunni á Blönduósi og þó fyrr en hún hófst. Varð ein leiksýning félagsins á Blönduósi árið 1947 a. m. k. óbeint til að hvetja til stofnunar ,,Vökunnar“. Félagið hefur verið svo lánsamt að hafa á að skipa nokkrum mjög góðum leikurum. Ungmennafélagið byggði ágæta sund- laug á Skagaströnd árið 1944. Hefur það rekið hana síðan til sundkennslu og frjálsra afnota fyrir bæjarbúa. Jarðhiti er þarna ekki fyrir hendi, svo hita verður laugarvatnið. Er þetta eitt hið mesta menningarmál og félaginu til verðugs hróss. Stórt félagsheimili er í byggingu á Skagaströnd og á félagið mikla hlutdeild að því fyrirtæki. Það leggur fram einn sjötta hluta af framlagi eigendafélagsins. Þá hefur félagið stundað íþróttir af miklu kappi, enda ávextir starfsins orðið ríkulegir. Frá félaginu hafa komið margir fremstu íþróttamenn og konur í héraðinu á íþróttamót U.S.A.H. og önnur þau mót, sem sambandið hefur tekið þátt í. Fremst- ir fara þar Sigurður Sigurðsson og Úlfar Björnsson, er margsinnis hafa áunnið sér meistaranafnbót fyrir afrek í frjálsum íþróttum. Ungmennafélagið Fram gerðist sam- S K I N F A X I 33

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.