Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 30

Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 30
þjóðvegarins. Engihlíðarhreppur annaðist girðingu reitsins. Mæðgurnar Ingibjörg Sigurðardóttir og dætur hennar Elísabet og Jakobína í Engihlíð höfðu gefið fimm- tán hundruð krónur til skógræktar í daln- um. Vorboðinn tók að sér umsjón reitsins og skóggræðslu. Síðan 1949 hefur félagið gróðursett árlega 800—1200 trjáplöntur, fyrstu árin birki og reyni, en síðustu ár allmikið af greni, furu og lerki. Taflskák hefur félagið Vorboðinn stundað mikið síð- ustu árin. Ilefur það nú í þrjú ár tekið þátt í skákkeppni á Blönduósi. Fyrsta árið var félagið fjórða í röðinni, en 1962 hafði það hæstu vinningatölu. Frjálsar íþróttir hefur félagið stundað með mestu prýði. Hafa sumir félagar þess verið í röðum beztu íþróttamanna lands- ins í nokkrum greinum. Af mörgum góðum íþróttamönnum félagsins vekur mesta at- hygli hin frábæra íþróttakona Guðlaug Steingrímsdóttir. Árið 1960 setti Guðlaug 12 héraðsmet og átti öll U.S.A.H. met í kvennagreinum. Ávann hún það ár félagi sínu verðlaunabikar fyrir metin. Á landsmóti U.M.F.I. að Laugum 1961 hlaut Guðlaug verðlaunabikar fyrir flest stig í kvennagreinum. Þá hefur Guðlaug orðið Islandsmeistari og Norðurlands- meistari í nokkrum íþróttagreinum, og í sumum þeirra hrundið Islandsmeti. Sjá söguágrip U.S.A.H. Árið 1961 varð Valdi- mar Steingrímsson Norðurlandsmeistari í 200 metra hlaupi. Margir fleiri félagar Vorboðans eru ágætir íþróttamenn og hafa unnið til verð- launa, þó ekki sé hægt að geta þeirra í svo Guðlaug Steingrímsdótíir, Umf. Vorboðinn. stuttu ágripi. Verðlaunagripir Umf. Vor- boðans eru ljósasta sönnun mikils áhuga og starfs félagsins í þágu íþróttamálanna. í árslok 1962 átti Vorboðinn þessa verð- launagripi: Verðlaunabikar frá U.S.A.H. fyrir flest stig í kvennagreinum 1960. Verðlaunabikar frá U.S.A.H. fyrir flest stig í kvennagreinum 1961. Verðlaunabikar frá U.S.A.H. fyrir flest stig í kvennagreinum 1962. Verðlaunabikar frá U.S.A.H. fyrir flest stig í karlagreinum 1962. Heiðurspeninga frá U.S.A.H. fyrir beztu þátttöku í íþróttavikunni 1959. Heiðurspening frá U.S.A.H. fyrir að vinna knattspyrnukeppni 1959. 30 S K I N F A X I

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.