Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 13

Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 13
staðfestingu fánalaganna árið 1918, þar sem aðeins var um staðarfána að ræða, var fögnuður æskulýðsfélaganna sem annarra óblandinn. Fáir efuðust um fullnaðarsigur í fyllingu tímans. Þegar talin eru stefnumál umf. og sam- taka þeirra í einu héraði landsins og starfs- saga þeirra að nokkru rakin, hlýtur hún í höfuðdráttum að bera svip frásagnar af starfsemi ungmennafél. almennt í öðrum landshlutum. Stefnuskrá þeirra allra er hin sama, hugsjónamálin þau sömu, hvort sem um er að ræða alkunn umbótamál at- vinnuveganna og önnur hliðstæð efni, efl- ingu einstaklingsþroska eða frelsisskrá þjóðarinnar. Og því bregður svipmynd heildarinnar oftar fyrir á þessum sagna- blöðum en ella væri. Stjórnarskrárbreytingin, er staðfest var árið 1915 og sem m. a. rýmkaði mjög rétt- indi kvenna, vakti óskiptan fögnuð félaga í S.U.A.H. Hafði sambandið haft málið til meðferðar og stutt eftir beztu getu. Þó að engra mikilla afreka félagasamtakanna sé að minnast frá fyrri starfstíma S.U.A.H., hafa þau samt mörgum góðum málum þok- að áleiðis eins og saga þeirra vitnar. Það tekur oft áratugi að brjóta landið og bæta svo jarðveginn, að hann verði hæfur fyrir viðkvæman, kröfuríkan gróður. Svo er það einnig um mannlega tilveru. Því hefur áður lýst verið, að hret og harðviðri gengu yfir félagsmálasviðið á þessu tímabili. En má vera, að afköst og uppskera hafi orðið minni en ella, vegna þess að félögin voru lengst af tímabilsins ekki öll undir sama merki, merki umf., þó að aldrei gætti þess verulega í samstarfinu. En þrátt fyrir að glæstar vonir brygðust að nokkru, er þó víst, að á þessu tímabili tókst að undirbúa jarðveginn og sá til þess gróðurs, sem vaxa skyldi, er vorsólin skini á ný í heiði. NYTT GRÓSKURlKT TlMABIL 1938—1962 Er líða tók á f j órða tug aldarinnar, vakn- aði á ný vorhugur umf. í héraðinu. Ný fé- lög voru stofnuð og flest þeirra eldri end- urvakin. Þótti þá gömlum ungmennafélög- um, sem aldrei höfðu misst vonina um bjartari og betri daga, tími hentugur að endurreisa Samband umf. Austur-Húna- vatnssýslu. Að tilhlutan Kennarafél. Austur-Húna- vatnssýslu var öllum æskulýðsfélögum í sýslunni sent bréf og þeim boðið að senda fulltrúa á fund á Blönduósi þann 26. fe- brúar 1938. Átti sá fundur að undirbúa framtíðar-samstarf félaganna og, ef sam- komulag næðist, kjósa nefnd til að endur- skoða lög S.U.A.H. og boða síðan fund að nýju. Skyldi þar staðfesta lagabreytingar, er kynnu að vera gerðar og kjósa nýja stjórn S.U.A.H. Á fundinum mættu fulltrúar frá: Umf. Fram, Skagaströnd, — Vorboðinn, Langadal, — Vorblær, Höskuldsstaðasókn, — Iivöt, Blönduósi, — Bólhlíðinga, — Vatnsdælinga, — Þingbúa. Fundurinn samþykkti einróma að end- urreisa sambandið og hvetja öll umf. í hér- aðinu til félagslegrar þátttöku í samband- inu. Kosnir voru til að endurskoða lög S.U. A.H. Halldór Jónsson, Bjarni Ó. Frímanns- son og Steingrímur Davíðsson. Var þeim S K I N F A X I 13

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.