Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.04.1963, Qupperneq 15

Skinfaxi - 01.04.1963, Qupperneq 15
nú að rætast. Með vaxandi velmegun óx sjálfstraust einstaklinganna, svo að sungið var fullum hálsi: „Táp og fjör og frískir menn finnast hér á landi enn.“ Æsku- mönnum var ljóst, að þeir áttu að erfa landið, og því bar þeim að leggja hrausta hönd á plóginn. Hugsjónaeldur aldamóta- æskunnar, sem um stund fölskvaðist nokk- uð, blossaði upp á ný og brann glaðar en nokkru sinni, enda aflgjafinn ríkulegri. Þjóðin hafði í senn öðlazt fullt sjálfstæði vegna drengilegrar og vaskrar baráttu sinna beztu manna á liðnum tíma, og mikla möguleika til að nema land sitt að nýju, rækta það og byggja, og þekkingu og afl til að nýta ótæmandi auðlindir í skauti lands og lagar. Á fyrstu héraðsþingunum eftir að sam- bandið byrjaði aftur reglubundin störf, var þegar mörkuð stefnan að nýju og merki ungmennafélaganna hafið aftur að húni. Á héraðsþinginu 1944 var stofnun lýð- veldisins og lýðveldishátíðin efst á baugi. Voru fulltrúarnir einhuga um að veita málinu allan þann stuðning, er þeir mættu, m. a. með því að hvetja alla atkvæðisbæra menn í héraðinu til að neyta atkvæðisrétt- ar síns við væntanlega þjóðaratkvæða- greiðslu um stofnun lýðveldisins. Á þing- inu flutti Halldór Kristjánsson erindi um sjálfstæðismál Islendinga. Enn vex áhugi og skerpist skilningur félagssamtakanna á hollustu, nytsemi og göfgi íþróttanna, og síðasta áratuginn hafa þær verið aðalmál héraðsþinganna og héraðsmótin helguð þeim nær einvörðungu. Verður síðar nánar getið þeirrar starf- semi. Tímarnir breytast — sviðið stækkar, ný verkefni krefjast úi’lausnar. Öllum menn- ingar- og framfaramálum vilja samtökin veita nokkurt lið. Ný hugsjónamál koma og til sögunnar, sem ungmennafélögin leysa á eigin vettvangi. 1 sambandi við héraðsþingið 1946 var haldin almenn skemmtisamkoma á Blöndu- ósi. Leikfélag á Skagaströnd sýndi sjón- leikinn ,,Tengdamamma“. Karlakór Ból- staðarhlíðarhrepps söng undir stjórn Jón- asar Tryggvasonar. Var leikflokknum og kórnum fagnað og þakkað að verðleikum. Húsfyllir var á samkomunni. Þá var stig- inn dans lengi nætur. Nýbreytni þessi varð til þess, að farið var að ræða um, hvort ekki væri rétt, að sambandið stofnaði skemmtisamkomu á vetri hverjum með fjölbreyttri skemmti- skrá og stæði sá mannfagnaður í viku, svo sem brúðkaupsfagnaður í fornum sið, en þar fóru fram margs konar þjóðlegir leikir Þó að þessi sæluvika Húnvetninga hafi ver- ið með öðrum hætti og þjónað nokkuð öðr- um tilgangi, er ekki fyrir að synja, að hún hafi leitt saman mann og meyju til varan- legra kynna og lífshamingju. Var málinu hrundið í framkvæmd 1948. Stóðu þær samkomur yfir sex daga. Þessi „sæluvika" hlaut nafnið Húnavaka. Síðan hefur „vakan“ verið haldin ár hvert, nema 1949 féll hún niður vegna samkomubanns. Á héraðsþinginu árið 1949 flutti P. V. G. Kolka héraðslæknir erindi um sjúkra- húsmál og fleiri héraðsmál Húnvetninga. En bygging héraðshælisins var þá ákveðin. Héraðsþingið samþykkti, að sambandið veitti málinu stuðning. Alls gaf U.S.A.Ii. til byggingarinnar 40 þúsund krónur. For- maður sambandsins, Guðmundur Jónasson, gaf héraðshælinu úr eigin pyngju stóra S K I N F A X I 15

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.