Skinfaxi - 01.04.1963, Qupperneq 26
tíðin oftlega til kynna við nágrannafélögin.
Var allt þetta til að glæða mjög félagslífið.
Til skemmtisamkoma, er félagið hélt jafn-
aðarlega eina á ári hverju, var vel vandað.
Stofnendur félagsins Framtíðin árið
1904 voru m. a.: Jón Guðmundsson, Torfa-
læk, Jón Benediktsson, Skinnastöðum, nú
bóndi á Húnstöðum, og Guðmundur Sig-
urðsson, bóndi að Kringlu.
Eftir árið 1932 er um sex ára bil starf-
andi unglingafélag í Torfalækjarhreppi,
sem Jónas Jónsson fræðslustjóri stofnaði,
en hann var þá farkennari þar í sveitinni.
Pálmi Jónsson,
bóndi, Akri.
1. form. Umf. „Húnar“.
Ungmennafélagið Húnar
var stofnað að Torfalæk 2. nóv. 1952.
Stofendur voru tuttugu. Fyrstu stjórn fé-
lagsins skipuðu: Pálmi Jónsson, nú bóndi
á Akri, Erlendur Eysteinsson, bóndi á
Beinakeldu og Stefán Jónsson, kennari,
Kagaðarhóli.
Á þessum tíu ára starfstíma hefur fé-
lagið verið virkt starfsfélag í U.S.A.H.
Félagið hefur m. a. tekið þátt í sveita-
keppni í skák sl. fjögur ár.
Húnar hafa stofnað húsbyggingarsjóð
Kristófer Kristjánsson,
Köldukinn II.
Núverandi form.
Umf. „Húnar“.
og hyggst félagið, þegar aðstæður leyfa,
reisa félagsheimili á starfssvæðinu. Nú-
verandi stjórn félagsins skipa: Kristófer
Kristjánsson, formaður, Jóhann 0. Jóns-
son, féhirðir og Jóhannes Torfason, ritari.
Ungmennafélag Bólstaðarhlíðarhrepps.
Málfundafélagið Vísir í Bólstaðarhlíðar-
hreppi var eitt af stofnfélögum héraðssam-
bandsins árið 1912 og var virk sambands-
deild til ársins 1926. Af ókunnum ástæðum
hvarf félagið úr sambandinu, hefur senni-
lega orðið óstarfhæft sem fleiri félög á
þeim tíma.
Árið 1935, 9. maí, var stofnað ung-
mennafélag í Bólstaðarhlíðarhreppi með 32
félögum. Félagið gekk í U.S.A.H. árið 1939
og starfaði að málum félagasamtakanna
síðan. Félagið hefur verið mjög athafna-
samt heima fyrir, einkum síðari árin.
Hefur það lagt mikið fé af mörkum, auk
sjálfboðavinnu, í félagsheimilið Húnaver.
Þá hefur félagið ásamt fleiri aðilum annast
gróðursetningu trjáplantna í skógarreit
við Ilúnaver.
Skemmtistarf, sérstaklega fyrir æsku-
26
S K I N F A X I