Skinfaxi - 01.04.1963, Qupperneq 28
fleiri íþróttum. Voru þar í fremstu röð
Hjálmar Þorsteinsson nú bóndi á Hofi á
Kjalarnesi, Halldór Snæhólm og Ingimund-
ur Bjarnason, Kirkjuskarði, nú búsettur á
Sauðárkróki.
Ungmennafélagið Vorblær.
Ungmennafélagið Vorblær var stofnað
að Höskuldsstöðum á pálmasunnudag
1938. Er félagssvæðið Höskuldsstaðasókn.
Hefur það tekið við hlutverki fyrirrennara
sinna, Ungmennafélagsins Framsóknar og
Ungmennafélagsins Morgunroðans á Lax-
árdal.
Félagið hefur, sem önnur slík, iagt stund
á fegrun móðurmálsins í mæltu og rituðu
máli. Félagið hefur haft umræðufundi um
þjóðþrifamál og gefið út félagsblað.
Þá hefur það hvatt félagsmenn sína til
að æfa ýmsar frjáisar íþróttir, svo sem
aðstaða hefur leyft. Skákíþróttin hefur og
verið iðkuð nokkuð á vegum félagsins.
Stærsta framkvæmd félagsins er efa-
laust bygging samkomuhúss fyrir félags-
svæðið. Byggingarvinnan var framkvæmd
af sjálfboðaliðum.
Á stofnfundi voru félagar 22 að tölu, en
fjölgaði brátt og urðu flestir sextíu. Var
þá um skeið mikil gróska í félaginu, syngj-
andi líf og fjör. Félagið æfði söng.
Síðustu ár hafa margir félagar helzt úr
lestinni, en fáir fyllt skarðið, og því hefur
hallað undan fæti um stund.
Ungmennafélagið Vorboðinn.
Ungmennafélagið Vorboðinn var stofnað
3. janúar 1916. Árið eftir gekk félagið í
S.U.A.H. og tók þátt í störfum sambands-
ins til ársins 1932. Þá mun hafa dregið úr
félagsstarfi nokkur ár, en síðan hófst það
að nýju með eldmóði æskunnar 4. des.
1937. Vafalaust hafa það þótt tíðindi mik-
il, þegar Vorboðinn kom í svartasta
skammdeginu, er hans var sízt von. Hafði
það þó skeð einu sinni áður, en frá þeim
atburði voru þá liðin nær 21 ár.
Timabilið 1916—1937.
Umf. Vorboðinn reyndist hugsjónaríkt
og starfsamt félag við allar framkvæmdir
S.U.A.H. Félagið var áhugasamt um
íþróttir og studdi sundlaugarmálið eftir
beztu getu.
Árið 1916 byrjar félagið að gefa út
handritað félagsblað. Hefurblaðiðkomiðút
flest ár síðan, venjulegast fjögur tölublöð
á ári. Á árunum 1922 til 1930 eru greinar,
sögur og ljóðmæli — kvæði og vísur — í
hverju blaði, flest frumsamið efni, en sumt
þýtt. Má marka af efni blaðsins, að mikill
andlegur gróandi hefur verið í félaginu.
Á fremstu síðu fyrsta tölublaðsins, sem
útgefið var 1922, er kvæðið Nýársnótt eft-
ir Guðmund Frímann. 1 sama blaði er smá-
sagan „Hugsjónir rætast“ eftir Pál Árna-
son. Eru hugsjónir ungmennafélaganna og
stefnumál tekin til meðferðar í söguformi.
Þá á Bjarni 0. Frímannsson langa ferða-
sögu í blaðinu. Allt er blað félagsins þrung-
ið eldmóði æskunnar, birtir þrár liennar,
vonir og fögur heit um að vinna óðali sínu
og ættjörð allt það gagn sem má, og bregð-
ast aldrei hugsjónastefnu félagsins.
Af þessu má ljóst vera að félagið hefur
alltaf haldið þeirri stefnu, sem það valdi
sér í upphafi. Að öðru leyti er ekki hægt
að rekja sögu félagsins á þessu tímabili,
því að heimildir vantar.
28
S K I N F A X I