Skinfaxi - 01.12.1976, Blaðsíða 6
strax. Heildaráætlun um kostnað við
byggingu þessara mannvirkja hljóðar
upp á 77 millj. kr.
Mannvirki þau, sem Dalvíkingar
verða að koma upp fyrir Landsmót,
eru grasvöllur með ílögðum hlaupa-
brautum, og keppnisaðstaða í sundi,
en á Dalvík er sem kunnugt er hita-
veita en aðeins er til 12x6 m sundlaug.
Önnur aðstaða á Dalvík til Lands-
mótshalds er mjög viðunandi. íþrótta-
salur 18x20 m með ágætum áhorf-
endasvæðum og ágætt félagsheim-
ili. Allrýmilegur húsakostur er í
skólum, nýr malarvöllur og ágætur
malbikaður (olíumöl) handknattleiks-
völlur á leiksvæði Barnaskólans, sem
einnig mætti nota til dansleikjahalds.
Þá mun vera allrýmileg aðstaða fyrir
tjaldstæði á túnum í nágrenni aðal-
íþróttasvæðisins.
H.Þ.
Iþróttir í myndlist
Það er fátítt að íslenskir myndlistarmenn fá-
ist við efni úr íþróttalífinu. Erlendis er það
hins ve?ar algengt og hefur svo verið um allar
aldir. Víða erlendis cru haldnar listsýningar
þar sem eingöngu eru sýnd myndlistarverk,
málverk, grafík og skúlptúr, sem sækja fyrir-
myndir úr iþróttum. Við birtum hér tvær
myndir sem verið hafa á slíkum sýningum.
Sú stærri sem sýnir blak á baðströndinni, er
eftir franska málarann Bernard Buffet og er
frá árinu 1928. Minni
myndin sem er aðeins
nokkurra ára gömul, er
eftir þjóðverjann Zits-
mann og heitir hún
„Lokaspretturinn".
6
SKINFAXI