Skinfaxi - 01.12.1976, Page 7
Landsmótið lífgar allt starfið
Rætt við formann UMSE
Hauk Steindórsson
Haukur Steindórsson bóndi í Þrí-
hyrningi í Hörgárdal hefur verið
formaður Ungmennasambands Eyja-
fjarðar síðan 1973 en áður hafði hann
ÁRSRIT 1975
UMSE gefur að jafnaði út myndarlegt ársrit
* hverju ári.
verið í stjórn sambandsins í mörg ár.
Skinfaxi hitti Hauk að máli á sam-
bandsstjórnarfundinum á Dalvík 23.
október s.l.
— Hvað er framundan hjá sam-
bandinu í vetur?
— Vetrarstarfið er þó nokkuð fjöl-
breyt hjá okkur. Innan skamms hefst
t.d. sveitakeppni bæði í bridge og skák
sem eru fastir liðir á hverjum vetri.
Siðan er oft keppt út í frá i þessum
greinum. Oftas er keppt við HSÞ í
bridge, og við höfum átt góð sam-
skipti við akureyringa í skák.
UMSE hefur í allmörg ár skipulagt
skólakeppni í íþróttum, og er það gert
með góðri samvinnu við skólana í hér-
aðinu. Þetta er keppni milli unglinga-
skólanna, og er keppt í fjórum grein-
um íþrótta: sundi, frjálsum iþróttum,
knattspyrnu og skák. Heildarstigatal-
an ræður úrslitum. Þessi keppni hefur
reynst hin ágæasta leið til að tengja
unglingana íþrótta- og félagsstarfi, og
þeir hafa sýnt keppninni mikinn
áhuga.
Á vetrum höfum við jafnan innan-
SKINFAXI
7